bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

E39 530i 2001 -70.xxxkm-
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=27798
Page 1 of 3

Author:  IvanAnders [ Wed 27. Feb 2008 22:54 ]
Post subject:  E39 530i 2001 -70.xxxkm-

Jæja :)

Keypti þennan bíl af vinnufélaga mínum í ársbyrjun...

Um er að ræða 2001 árgerð af 530i, fluttur inn af BogL (eins og allir mínir BMW-ar :lol: )

Fyrsti eigandi kaupir bílinn nýjan af umboði, og á hann þangað til í september 2007 og er hann þá keyrður 19.300km :shock:

Þá Kaupir Bjarki Jónsson, kenndur við BogL, bílinn og tekur á hann inspection, rennir diska, fer með bílinn í smáréttingar og massar á honum lakkið, hann hugsaði þennan sem konubíl, en konan vildi ekki sleppa E46inum sínum, þannig að bíllinn verður til sölu.

Ég kaupi hann í byrjun Janúar, þá keyrðan 19.900km 8)

Bíllinn er nánast óaðfinnanlegur að innan jafnt sem utan, og er alveg Lygilega þéttur!!!! :shock:

Bíllinn er óslitinn, óbeyglaður og órispaður, en ekki alveg gallalaus!

til að mynda er hann á herfilegum afa-felgum og ennþá herfilegri dekkjum, sem að henta eflaust þristi, en EKKI fimmu! en þetta eru vetrardekk, og verður kippt í liðinn!

Bíllinn er facelift, en það var val á sýnum tíma hvort að menn vildu orange eða hvít stefnuljós, og einhver sauðurinn hefur valið orange, en borgaði samt extra til að fá shadowline!

Ég er búinn að setja hvít stefnuljós að aftan og í frambretti, en kostnaðurinn við að losna við orange-ið úr framljósunum er bara of mikill til að ég geti réttlætt það :?

Bíllinn er ekki að drukkna í aukabúnaði, en dugir mér vel!

m.a. Leður, rafmagn og minni í öllu, xenon + angel eyes, regnskynjari og flr.

Einnig setti ég í hann blá angel eyes frá Þórði, en Aroni Andrew tókst einhvern veginn að mynda þau gul :lol:

Jæja, BARA mikið blaður, sem að ekki nokkur maður nennir að lesa, þannig að ég hendi bara inn nokkrum myndum!

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Myndir að innan vegna fjölda áskorana! :lol:

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

:wink:

Author:  Einarsss [ Wed 27. Feb 2008 22:57 ]
Post subject: 

Myndarlegast E39, ekki margir í þessum lit hérna heima.

Til hamingju 8)

Author:  bimmer [ Wed 27. Feb 2008 23:02 ]
Post subject: 

Hef skoðað þennan bíl og hann er alveg bjánalega lítið slitinn!!!

Author:  IvanAnders [ Wed 27. Feb 2008 23:05 ]
Post subject: 

Þórður, hefur þú lent í því að angel eyes-in verði "stock" -gul á myndum?
Eða er Andrew bara auli? :lol:

Author:  Djofullinn [ Wed 27. Feb 2008 23:10 ]
Post subject: 

Verulega heill 8)
Engar myndir innan úr honum?

Author:  bimmer [ Wed 27. Feb 2008 23:13 ]
Post subject: 

IvanAnders wrote:
Þórður, hefur þú lent í því að angel eyes-in verði "stock" -gul á myndum?
Eða er Andrew bara auli? :lol:


Þau eru náttúrulega frekar hvít heldur en blá.

Hér eru myndir hjá framleiðanda: http://angelibright.com/?page=gallery

Author:  IvanAnders [ Wed 27. Feb 2008 23:23 ]
Post subject: 

Djofullinn wrote:
Verulega heill 8)
Engar myndir innan úr honum?


Jú, á myndir innan úr honum sem að ég tók sjálfur, þá var held ég aldrei búið að prumpa í aftursætin á honum :lol:

En ég er líka auli, og allar þær myndir eru yfir 3mb og vilja bara ekki fara á netið, redda þessu bráðlega!!!!


bimmer wrote:

Þau eru náttúrulega frekar hvít heldur en blá.

Hér eru myndir hjá framleiðanda: http://angelibright.com/?page=gallery


Jájá, hvort sem að þau eru blá eða hvít, að þá eru þau EKKI gul! :lol:
Ég skrifa þetta bara sem aul á Aron :lol:

Author:  ömmudriver [ Wed 27. Feb 2008 23:24 ]
Post subject: 

Nau nau nau removable trailer hitch, SWEET 8)

Til hamingju með bílinn :)

Author:  einarornth [ Wed 27. Feb 2008 23:28 ]
Post subject: 

Flottur þessi, mér finnst e39 mun flottari silfraður en t.d. e60.

Felgurnar eru nú ekki svo slæmar, allavega svona í snjónum.

Author:  Angelic0- [ Wed 27. Feb 2008 23:31 ]
Post subject: 

Bjanalega litid ekinn. Flottur litur lika. Hvernig er svo ad eiga E39 sem ad er ekinn minna en flestir E60 herlendis? :lol:

Author:  Aron Andrew [ Thu 28. Feb 2008 00:26 ]
Post subject: 

Æðislega heill bíll 8)

En með þessi gulu angel eyes :lol:
Ég veit ekki hvað klikkaði :oops:

Author:  aronjarl [ Thu 28. Feb 2008 01:00 ]
Post subject: 

góður bíll,

sá hann um daginn niður laugavegin með hip hop í botni engin topplúga reyndar opin..


en engla augu :angel:



góður cruiser :arrow:

Author:  Mánisnær [ Thu 28. Feb 2008 01:34 ]
Post subject: 

einarsss wrote:
Myndarlegast E39, ekki margir í þessum lit hérna heima.

Til hamingju 8)


Er þetta eitthvað spes silfarður? því nóg er af silfur e39.

Annars er hann alveg dúndur flottur hjá þér, ég er búinn að vera að bíða eftir þráð um hann.

til hamingju

Author:  íbbi_ [ Thu 28. Feb 2008 10:56 ]
Post subject: 

ég hafði ekki hitt annað jafn lítið slitið eintak af E39 í nútímanum og 540 mtech bílin sem ég átti.. en ég starði alveg þegar ívar sýndi mér þennann

gullfallegur

Author:  Stebbimj [ Thu 28. Feb 2008 13:20 ]
Post subject: 

Tilhamingju, hann er alveg fáránlega flottur :drool:

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/