bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
525i 11.93 - Der Autobahnführer [B I T T E] POLIZEI https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=26725 |
Page 1 of 8 |
Author: | Bjarki [ Fri 11. Jan 2008 03:55 ] |
Post subject: | 525i 11.93 - Der Autobahnführer [B I T T E] POLIZEI |
Ég ásamt bróður mínum langaði til að eiga bíl í Þýskalandi. Fór að skoða tryggingar þarna úti ásamt bifreiðagjöldum og þetta kostar handlegg. Þannig það kviknaði hugmynd að senda bara bíl á íslenskum númerum út ![]() Það var bara slegið, vildum einfaldan ódýran góðan bíl með mikinn áreiðanleika. Fyrir valinu varð e34 525i m50 e34 eru ódýrir og góðir bílar m50 eru frábærir mótorar í alla staði. Keyptum svo bíl í keflavík 525iA ek rúm 300tkm (MV518). Hann er sjálfskiptur svo það þurfti e-ð að gera í því, keyptum 520i bíl af Húna sem verður donor með allt sem þarf í beinskiptingar-swap. Bíllinn var svona ágætur, góður m.v. akstur. Nýlega búið að sprauta næstum því allan bílinn, samt smá ryð hér og þar en ekkert alvarlegt, undirvinnan sennilega ekki verið upp á marga fiska. Allt nýtt í hjólastellinu að framan, spyrnur, stýrisendar, miðjustöng o.fl. Bremsur í ágætu lagi, nýjir demparar og gormar að aftan. Læst drif sem er víst nýlega yfirfarið en það er samt farin pakkdós þar og annar öxullinn var laus og drifskaftið líka, útskýrir sennilega mikinn titring að aftan í akstri! Bíllinn er ekkert hlaðinn af búnaði en topplúga, niðurfellanleg aftursæti og kannski eitthvað smotterí. Sakna mest að hafa ekki loftkælingu.... Er að yfirfara bílinn þessa dagana og reyna að gera allt sem ég get svo bíllinn verði sem bestur þarna úti og taki ekki upp á því að bila! Byrjaði í gær að skrúfa, tók vél og skiptingu úr bílnum. Skrúfaði svo vélina í sundur í dag. Pantaði allt í vélina, slípisett efra og neðra, allar legur, tímakeðju og sleða. Svo ætla ég að skipta um vatnslás, vatnsdælu og viftukúpplingu. Heddið verður vonandi klárt eftir helgi, það verður yfirfarið. Á að fá alla varahlutina í þetta á þriðjudaginn þannig þá verður farið á fullt að skrúfa þetta saman....ætla ekki að setja tíma á gangsetningu en vona það besta. Vélin var í góðu lagi en mótorinn er það mikið keyrður að ég ákvað að fara út í þennan pakka. Ég réttlæti allar viðgerðir og allan kostnað með því að stopp á hraðbraut kostar varla undir 50þús!! Þá borgar sig að gera margt. Bíllinn á að fara í skip 22. jan og ég fer út 24. jan.....ekki langur tími en ég er bjartsýnn maður og vona það besta. Nokkrar myndir af því sem komið er, ætla svo að reyna að koma með fleiri myndir af þessu verkefni. ![]() Endaði með að taka allt framan af bílnum, var einn og náði ekki að lyfta skiptingunni og vélinni nógu hátt, í fyrstu hífingu slitnaði bandið sem ég var með og þetta datt niður um 70cm skipting og vél....bara vont en held að allt hafi sloppið! ![]() Soggrein, rafkerfi o.fl. ![]() Heddið, ásarnir, undirlyfturnar, ventlalokið. ![]() Blokkin stök ![]() Flest komið úr blokkinni, eiginlega bara tímakeðja og sleðar eftir ásamt sveifarásnum, var ekki með loft til að losa framanaf vélinni. ![]() Þetta er bara eins og nýtt... "hón"-förin ennþá þarna!! ![]() Það sem er eftir í blokkinni ![]() Höfuðlegurnar, ekki mikið slit í þessu eftir 300tkm ![]() Aðeins farið á sjá á stangalegunum ![]() Aðeins farið að sjá á tveimur svona legum yfir ásana en þetta á alveg að vera í góðu lagi. Svo er bara að vona að þetta gangi allt upp! |
Author: | Ibzen [ Fri 11. Jan 2008 04:46 ] |
Post subject: | |
Alltaf gaman að fylgjast með svona aðgerðum þegar nóg er um myndir. Magnað að þið séuð að fara með þennan bíl til Þýskalands, svipað og að fara með kaffi til Kólumbíu. ![]() En ef að þetta er mun ódýrara þá ekki spurning. |
Author: | Alpina [ Fri 11. Jan 2008 07:18 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() ![]() sakna hans... GRÍÐARLEGA hehehe Það er BARA verið að græja og gera |
Author: | steini [ Fri 11. Jan 2008 07:54 ] |
Post subject: | |
svoldið spes að eiga bíl úti þýskalandi og þurfa að kaupa hann hérna heima ![]() |
Author: | aronjarl [ Fri 11. Jan 2008 17:07 ] |
Post subject: | |
ástæðan fyrir að bjarki er að gera þetta er að hann verðum með hann á íslenskum númerum = töööluvert ódýrara.! annars flott hjá þér kall.! koma með myndina af viðgerðinni minni á skiptidótinu ![]() |
Author: | Bjarki [ Fri 11. Jan 2008 17:32 ] |
Post subject: | |
steini wrote: svoldið spes að eiga bíl úti þýskalandi og þurfa að kaupa hann hérna heima
![]() Já bíllinn verður náttúrlega á íslenskum númerum og þau verða svo lögð inn Þegar ekki er verið að nota bílinn. Kostnaður við tryggingar verður því ekki hár. Það eru nú nokkrir sem hafa gert þetta nema bara farið aðeins aðra leið. Keypt bíl úti, flutt hann inn og svo sent hann fljótlega aftur út. Tryggingar og bifreiðagjöld eru ekki há á Íslandi. Það kostar líka mjög svipað að tryggja 518i og M5! sem er kostur |
Author: | Bjarki [ Mon 14. Jan 2008 01:12 ] |
Post subject: | |
Allt að gerast. Búinn að rífa beinskipta bílinn og kominn með allt sem þarf til að gera hinn beinskiptan. Fékk mér einkanúmer, varð að gera það því bíllinn er að fara út.....mér finnst eitthvað alveg hrikalega cool við það að vera með íslensk einkanúmer erlendis!! Er að hreinsa hlutina í vélina og undirbúa það dæmi, á að fá alla varahluti á þriðjudaginn. Þá verður skrúfað og skrúfað! ![]() BITTE það komu upp margar hugmyndir, engin ein sérstök ástæða fyrir því að bitte var valið. Það er frekar undarlegt einkanúmer en kemur sennilega til með að vekja smá athygli þarna úti....vilja það ekki allir. ![]() Fékk mjög orkumikinn gest í heimsókn. Hann átti svo að mæta aftur í dag og æfa sig í boddy-viðgerðum......en mætti EKKI! ![]() Þetta er úr heddinu í vélinni sem var í þessum 520i bíl, það kom gat á olíupönnuna.....gæti mögulega skýrt þetta. ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Mon 14. Jan 2008 01:15 ] |
Post subject: | |
Þetta er uppáhalds einkanúmerið mitt! ![]() En hver var að gata brettið? |
Author: | bjahja [ Mon 14. Jan 2008 01:16 ] |
Post subject: | |
hhaha, geggjað númer ![]() |
Author: | arnibjorn [ Mon 14. Jan 2008 01:18 ] |
Post subject: | |
Þetta einkanúmer er barílagi. ![]() |
Author: | saemi [ Mon 14. Jan 2008 01:41 ] |
Post subject: | |
Þetta verður svo flott þarna úti... það eiga allir eftir að elska þig og brosa ![]() |
Author: | Ibzen [ Mon 14. Jan 2008 01:51 ] |
Post subject: | |
Sjitt... Ég held að þú þurfir að setja spess þjófavörn á þetta númer ef þú ætlar með þetta út. Þetta er svipað og með Árna Johnsen... hann er með númerið ÍSLAND. Ég man ekki hvað hann er búinn að panta oft nýtt númer en það er oftar en 5 sinnum a.m.k. Þetta fær engann frið hjá honum, ég veit ekki hvort að það er númerið eða hann sjálfur sem er ástæðan. Hver og einn getur velt því fyrir sér. ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Mon 14. Jan 2008 01:57 ] |
Post subject: | |
Ætli þjóðverjar séu ekki aðeins minni fífl en íslendingar... Efast um að það sé allstaðar í heiminum fólk sem stelur númeraplötum. |
Author: | Alpina [ Mon 14. Jan 2008 07:33 ] |
Post subject: | |
Frábært númer,, ..alvöru dæmi með vélina ,, ALLT nýtt ![]() ![]() |
Author: | _Halli_ [ Mon 14. Jan 2008 14:40 ] |
Post subject: | |
Bjarki wrote: Hann átti svo að mæta aftur í dag og æfa sig í boddy-viðgerðum......en mætti EKKI!
Mér var alltaf kennt að byrja smátt, ég lagði ekki í þetta!:shock: |
Page 1 of 8 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |