bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Fyrsti Bimminn https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=23330 |
Page 1 of 1 |
Author: | flatbeat [ Tue 24. Jul 2007 01:33 ] |
Post subject: | Fyrsti Bimminn |
Var að fjárfesta í fyrsta Bimmanum mínum, og verð að segja að ég er hel sáttur með kaupin ![]() Bíllinn er E30 316i árgerð 1990 og keyrður 144þús frá upphafi. Örfáir eigendur og varla neitt teljanlegt ryð nema aðallega í sílsunum. Hann mun byrja að sjást á götunni innan skamms en áður en að því kemur ætla ég að gera hann jafnvel sætari ![]() Það sem er að honum er að bensínleiðslan er öll götótt og því hauglekur bensíni af bílnum. Fjárfest verður í nýrri bensíndælu fljótlega og skipt um allt heila klabbið. Einnig virðist geymirinn missa hleðsluna og því er hann alltaf rafmagnslaus eftir að hafa staðið í einhvern tíma. Allt þetta verður lagað en ég geri ráð fyrir að bíllinn mun fara að sjást reglulega á götunni fyrir enda ágúst ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | srr [ Tue 24. Jul 2007 01:52 ] |
Post subject: | |
Til hamingju með gripinn. Mæli með nýrri númeraplötu að framan og nýjum felgum ![]() |
Author: | gunnar [ Tue 24. Jul 2007 02:05 ] |
Post subject: | |
Þessi virðist nú bara vera frekar heillegur. Til hamingju ![]() |
Author: | BMW_Owner [ Wed 25. Jul 2007 02:52 ] |
Post subject: | |
vel nettur ekki var minn fyrsti með rafmagn í rúðum ![]() til hamingju með nýja bílinn |
Author: | ömmudriver [ Thu 26. Jul 2007 23:39 ] |
Post subject: | |
Hey ok þessi er á kraftinum, ég sé hann nefnilega á hverjum degi. |
Author: | flatbeat [ Fri 27. Jul 2007 00:09 ] |
Post subject: | |
ömmudriver wrote: Hey ok þessi er á kraftinum, ég sé hann nefnilega á hverjum degi.
Meinarðu bara parkeruðum fyrir utan Bernhard? Því hann stendur bara þar núna bíðandi nýju bensíndælunnar sinnar ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |