Jæja, loksins er maður kominn á BMW aftur!
Lurker no more
Búinn að vera hérna á kraftinum að sniglast í örugglega meira en ár og verið að skoða og spekulera og einstaka sinnum leggja inn komment. Ákvað svo að nú væri nóg komið og skellti mér á E39 523 99'. Nánar tiltekið bílinn hans Óskars (IceDev).
Ég er mjög sáttur við kaupin, bíllinn einstaklega vel búinn með allt sem ég hefði viljað í svona bíl. Eins og sumir ykkar vitið er þetta E39 523
beinskiptur 
með leðurklæddum sportsætum, M stýri, M fjöðrun og margt margt fleira.
Eitthvað ætla ég mér að betrumbæta hann, fór daginn sem ég fékk hann í TB og keypti mér crystal hvít/rauð afturljós sem gera bílinn mun flottari, eins og dagur og nótt að aftan. Hann er með prefacelift hvít stefnuljós þannig að þau mega bíða en þarf að fá mér á hliðarnar í stað svörtu sem reyndar eru alveg að gera góða hluti svosem.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, læt fylgja með eina mynd frá honum Óskari og stel frá honum smá lista úr söluþræðinum. Kem svo með nýjar myndir strax og ég get.
Helstu uppl:
Bsk
2.5l vél
182 hö (skráð 170) (
http://www.dsv.su.se/~mad/power.html )
Litur: Orientblau
Litur á leðri: Montana schwartz
Xenon ljós
Aksturstölva
M Fjöðrun
M leðrað aðgerðarstýri
Stillanlegt stýri
Svart leður
Miðstöð
Viðarlistar
Sjúkrakassi undir sæti
Navigation/Sjónvarp
Geislaspilari með 6 diska magasíni
Rafmagnsdrifin tvívirk topplúga
Rafmagn í gluggum
Rafmagn í speglum
Birtuskynjari fyrir spegla
Cruise control
Niðurfellanleg aftursæti
Samlæsingar
Fjarlæsingar
ABS
Regnskynjari á rúðuþurkum
Loftpúðar farþegameginn
Loftpúðar ökumeginn
Hliðarloftpúðar
ESP( Skriðvörn )
Spólvörn
Ljósþvottur & Intensive þvottur
Shadow line
Velúr fótmottur
Hiti í sætum ( 3 stillingar )
Sportsæti
PDC (Parking distance control)
Hi-fi hátalarar

_________________
BMW E39 523i '99 M Parallels "seldur"
VW Passat '98 "seldur"
VW Golf GTI '98 "seldur"
BMW E30 320i M-tech I '86 "dáinn"
