bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

BMW 523i ´96.
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=22026
Page 1 of 1

Author:  KO [ Fri 11. May 2007 10:43 ]
Post subject:  BMW 523i ´96.

Jæja komin tími að skella sínum inn.

Keypti þennan bíl tjónaðan hægra megin að framan lítið tjón var samt skráður tjónabíll en grindin reyndist hárrétt við mælingu. Fékk nýrri stuðarann á hann sem leiddi til þess að ég gat ekki sett shaddowline allan hringinn og lét samlita hann, finnst það bara koma ágætlega út. Á enn eftir að henda kösturunum í stuðarann og svo langar mig að setja facelift ljós að aftan er ekkert sérstaklega hrifinn af þessum appelsínugulu.

Image

Svo nokkrar myndir eins og hann var um daginn:
Image
Image
Image
Image

Author:  Angelic0- [ Fri 11. May 2007 10:54 ]
Post subject: 

Ahh, þetta er þessi bíll :)

Pabbi þinn kom hingað til mín og var að spjalla við okkur meðan að við vorum að rífa M5 ;)

Flottur bíll og verulega vel staðið að viðgerð ;)

Ég benti pabba þínum einnig á hugmynd með afturljós sem að kannski kemur sér betur.

Flottar felgur og ný afturljós... þá er þessi bíll bling ;)

Author:  Einarsss [ Fri 11. May 2007 11:04 ]
Post subject: 

Laglegur og hefur mikla möguleika þessi bíll og ég myndi segja að byrja á nýjum stærri felgum :P

Author:  KO [ Fri 11. May 2007 11:16 ]
Post subject: 

Jamm planið er einmitt að fixa afturljósin og finna svo fallegar felgur. Ég er með gömlu ljósin af bílnum hans Danna og ætla að dútla mér og sjá hvort það sé hægt að laga þau.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/