Smá update

Olíulekinn við dipstick var bara ónýtur O-hringur. Pantaði OEM BMW og vandamálið er farið
Annað sem ég hef dundað við nýlega er:
-Stærsta verkefnið var að ventlastilla. Forsagan var að ég fór til að hitta Sveinbjörn Hrafnsson á Alpina samkomu sem var haldin hjá BMW dealer hér í Lúx. Einn bifvélavirkinn sem var að skoða bílinn minn spurði mig strax hvort það væri langt síðan ég hefði ventlastill. Ég sagði að þetta hedd hefði ég aldrei stillt, en hefði verið nýbúinn að gera það á heddinu í motornum sem sprakk. Hann sagðist heyra að bíllinn þyrfti ventlastillingu strax, sem var nokkuð áhugavert því að í sömu viku hafði ég verið að spjalla við Garðar "gardara" hér á kraftinum um sama hlut. Ég ákvað því að vaða í verkið sem var nokkuð langdregið. Nr1 þá þurfti að finna skinnurnar á þolanlegu verði. BMW var ekki að fara að gefa mér þetta. Ég keypti þær á endanum af eBay aðila í UK sem var að selja skinnur fyrir FIAT. Sömu skinnur. Keypti slatta af hinum og þessum stærðum miðað við það sem ég hafði mælt áður hjá mér. Því miður átti ég ekki OEM BMW verkfærið í þetta og notaði því bara þrýstiloft og skrúfjárn. Gekk ágætlega svosem. Það var greinilegur munur á því hvernig mótorinn gekk eftir þetta. Mun þýðari, enda voru margir ventlarnir alveg út úr kú hvað stillingu varðaði. Ég náði þeim niður í flott bil.

-rúðuupphalarinn í bílstjórahurðinni var orðinn lélegur, í raun brotinn. Keypti aftermarket sleða og setti í en hann var hræðileg hrakasmíði. Reif hann úr og reyndi að betrumbæta með því að bora hnoðin úr pg setja skrúfur+rær. Lagaðist aðeins en var samt hræðilegt. Keypti þá notaðan OEM úr 1988 bíl og hann svínvirkar. Eina sem ég þarf að finna út úr er að rúðan fer of neðarlega í neðstu og ekki nægjanlega ofarlega í efstu.
Ég var að ráðfæra mig við Bentley manual en skil ekki alveg hæðarstillingarnár.
-ég færði lofthita mælinn fyrir inntakið úr rörinu sem fer í inntakið, og setti hann í inntakið (plenium) í staðin. Smá bor, helicoil, og málið dautt. Nýr mælir með gengjum í stað gamla, mun hreinlegra setup en áður. Gamla var hálgert skítamix. Kem með myndir af þessu.
-hitavafði fremri flækjurnar, bæði til að verja úttaks knastása skynjarann en líka bara álmennt betra og ljómar fínt. Á eftir að möndlast við að vefja aftara, aðgengið er ekki gott. Myndir koma.

-eftir einhvern hasar í sumar var komið hljóð í 3.15 OEM drifið. Ég ákvað því að rífa það úr og setja læst 2.93 sem ég átti á lager. Það drif hentar líka betur fyrir bílinn á marga vegu. Lét ekki alveg þar við sitja heldur málaði og skipti um skrúfur og dót. Þurfti líka að splæsa nýjum tengjum á loomið fyrir speed sensor. Myndir seinna.

-Guibo var ónýtt og ég átti til “solid” ál með poly sem ég hafði keypt fyrir einhverju. Notaði tækifærið og henti því í, en eftir smá test með drifskaftinu ákvað ég að taka það aftur úr. Víbringurinn var óbærilegur.
-þar sem bíllinn var á búkkum notaði ég tækifærið og þreif fjöðrun, bretti, öxla og brettin að innan, sem og felgurnar að innan. Myndir seinna.
Annars hefur bíllinn verið nokkuð góður, fyrir utan smá brandara. Gunni bað mig að logga mun á inntaks hita með og án WatwerInjection. Ég fór í það, og þegar þeir fóru skoðaðir kom í ljós að ég var bara að ná c.a. 14PSI... en á að ná 18-20PSI. Eftir að hafa grafið upp gamla logga fundum við út að þetta hafði verið svona í næstum 2 ár! Ég hafði á þeim tíma ekkert kvartað yfir afl leysi

. Þetta var ,
Mjög auðvelt að laga satt best að segja. Hosuklemma á fremri túrbínunni sem tengir hana við kerfið hafði runnið af

. Myndir seinna.
Eftir að ég lagaði það var ótrúlegt að finna aflmuninn, en ég tek það fram að hann var alls ekki kraflaus fyrir.
Ætli munurinn á 14PSI og 18PSI séu 70-100 hestar? Að ógleymdum mun á togi bæði í tölu og á hvaða snúning það kemur.