bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Loksins... E39 523i - M Parallels
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=18944
Page 1 of 5

Author:  bjornvil [ Sun 10. Dec 2006 23:42 ]
Post subject:  Loksins... E39 523i - M Parallels

Jæja, loksins er maður kominn á BMW aftur!

Lurker no more :)

Búinn að vera hérna á kraftinum að sniglast í örugglega meira en ár og verið að skoða og spekulera og einstaka sinnum leggja inn komment. Ákvað svo að nú væri nóg komið og skellti mér á E39 523 99'. Nánar tiltekið bílinn hans Óskars (IceDev).

Ég er mjög sáttur við kaupin, bíllinn einstaklega vel búinn með allt sem ég hefði viljað í svona bíl. Eins og sumir ykkar vitið er þetta E39 523 beinskiptur :D með leðurklæddum sportsætum, M stýri, M fjöðrun og margt margt fleira.

Eitthvað ætla ég mér að betrumbæta hann, fór daginn sem ég fékk hann í TB og keypti mér crystal hvít/rauð afturljós sem gera bílinn mun flottari, eins og dagur og nótt að aftan. Hann er með prefacelift hvít stefnuljós þannig að þau mega bíða en þarf að fá mér á hliðarnar í stað svörtu sem reyndar eru alveg að gera góða hluti svosem.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, læt fylgja með eina mynd frá honum Óskari og stel frá honum smá lista úr söluþræðinum. Kem svo með nýjar myndir strax og ég get.

Helstu uppl:
Bsk
2.5l vél
182 hö (skráð 170) ( http://www.dsv.su.se/~mad/power.html )
Litur: Orientblau
Litur á leðri: Montana schwartz

Xenon ljós
Aksturstölva
M Fjöðrun
M leðrað aðgerðarstýri
Stillanlegt stýri
Svart leður
Miðstöð
Viðarlistar
Sjúkrakassi undir sæti
Navigation/Sjónvarp
Geislaspilari með 6 diska magasíni
Rafmagnsdrifin tvívirk topplúga
Rafmagn í gluggum
Rafmagn í speglum
Birtuskynjari fyrir spegla
Cruise control
Niðurfellanleg aftursæti
Samlæsingar
Fjarlæsingar
ABS
Regnskynjari á rúðuþurkum
Loftpúðar farþegameginn
Loftpúðar ökumeginn
Hliðarloftpúðar
ESP( Skriðvörn )
Spólvörn
Ljósþvottur & Intensive þvottur
Shadow line
Velúr fótmottur
Hiti í sætum ( 3 stillingar )
Sportsæti
PDC (Parking distance control)
Hi-fi hátalarar

Image

Author:  Jonni s [ Sun 10. Dec 2006 23:52 ]
Post subject: 

Frá einum 523 eiganda til annars segi ég til hamingju með eðalvagninn.

Author:  bjornvil [ Sun 10. Dec 2006 23:56 ]
Post subject: 

Jonni s wrote:
Frá einum 523 eiganda til annars segi ég til hamingju með eðalvagninn.


Takk fyrir það :), magnaðir bílar alveg þessar fimmur. Væri samt alveg til í nokkra hesta í viðbót. Er einhver örugg leið til þess? Chip kannski?

Author:  arnibjorn [ Mon 11. Dec 2006 00:23 ]
Post subject: 

Flottar felgur og þessi bíll verður BLING 8)

Til hamingju :)

Author:  bjornvil [ Mon 11. Dec 2006 00:51 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:
Flottar felgur og þessi bíll verður BLING 8)

Til hamingju :)


Einmitt, mig langar í þessar, ....BARA.... í lagi :D

Image

Author:  IceDev [ Mon 11. Dec 2006 00:56 ]
Post subject: 

Úllamúlla, gaman að sjá

Vonandi að þú njótir eins vel og ég og hlakka til að sjá hvað gert verður fyrir þennan...

Er að horfa á aðra BMW öfundaraugum núna, ég er held ég háður BMW :oops: :)

Author:  bjornvil [ Mon 11. Dec 2006 13:08 ]
Post subject: 

IceDev wrote:
Úllamúlla, gaman að sjá

Vonandi að þú njótir eins vel og ég og hlakka til að sjá hvað gert verður fyrir þennan...

Er að horfa á aðra BMW öfundaraugum núna, ég er held ég háður BMW :oops: :)


Já ég held það verði gaman að sjá hann þróast í framtíðinni :)

Author:  jonthor [ Mon 11. Dec 2006 14:01 ]
Post subject: 

Glæsilegt :)

Author:  Aron Fridrik [ Tue 12. Dec 2006 00:33 ]
Post subject: 

alltaf að sjá hann á ferðinni í kef :D

Author:  bjornvil [ Sat 20. Jan 2007 22:51 ]
Post subject: 

Jæja, komst í að bóna hann í gær. Hann var bara viðbjóðslegur eftir þónokkrar bæjarferðir í viðbjóðsfærðinni.

Tók nokkrar myndir í svona í tilefni dagsins. Sést hvað ég hef gert fyrir hann síðan ég fékk hann. Það er svo sem ekki mikið, en það eru ný rauð/hvít afturljós, hvít hliðarstefnuljós og svört nýru. Mér finnst svörtu nýrun koma ágætlega út, langar samt að sjá hvernig facelift krómnýru koma út á honum. Framtíðin er svo sem óljós, það verða örugglega facelift framljós og felgur, kannski front lip spoiler. Svo langar mig aðeins að fikta í mótornum. Fá nokkra aukahesta ef hægt er. Það væri gaman að fá einhverjar uppástungur. Hef séð ýmislegt gert við M52 mótorinn, veit samt ekki hvað sé sniðugast að gera og í hvaða röð. :)

Image



Image

Author:  Benzer [ Sat 20. Jan 2007 23:48 ]
Post subject: 

Nice...Það er skylda að útrýma öllu krómi af BMW 8)

Author:  íbbi_ [ Sun 21. Jan 2007 03:35 ]
Post subject: 

ég hef aldrei farið leynt með það að mér finnst svarið við aukahestum í 523 vera uypgrade í 540, en þetta er annars verulega smekklegur E39 bíll, skemmtilega loaded,

Author:  Djofullinn [ Sun 21. Jan 2007 11:01 ]
Post subject: 

M50 manifold

Author:  bjornvil [ Sun 21. Jan 2007 13:26 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
ég hef aldrei farið leynt með það að mér finnst svarið við aukahestum í 523 vera uypgrade í 540, en þetta er annars verulega smekklegur E39 bíll, skemmtilega loaded,


Já, auðvitað er mesta vitið í þvi að fara bara í 540, en það er orðinn svolítið annar pakki, eyðslu og viðhaldslega séð. Og þetta er skemmtilegur bíll, vel búinn eins og þú segir og ég er ekki að að tala um að koma honum í einhvert 540 performance. Mig langar bara í aðeins meira spark í rassinn.

Þetta er kraftmesti bíll sem ég hef átt þannig að öll kraftaukning er góð fyrir mig :)

Author:  Schulii [ Sun 21. Jan 2007 13:40 ]
Post subject: 

Þessi bíll er svo loaded að það er unreal!!

Langaði mikið í þennan bíl á tímabili!!

Page 1 of 5 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/