bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW 318is '95 Daytona Violet *Update bls 2* https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=18717 |
Page 1 of 2 |
Author: | Gunni [ Wed 29. Nov 2006 17:04 ] |
Post subject: | BMW 318is '95 Daytona Violet *Update bls 2* |
Ég fékk mér þennan bíl á haustmánuðum 2006. Þetta er s.s. E36 318is coupe '95 árgerð, beinskiptur, Daytona violett með ljósu leðri. Bíllinn er ansi vel búinn aukabúnaði, en það skemmtilegasta er klárlega læsta drifið ![]() Það er ýmisleg gotterí í honum sem gaman er að, en t.d. má nefna m-tech búnaður eins og hann leggur sig, svartur toppur, topplúga, cruise control, rafdrifnar afturrúður ofl. Einhverra hluta vegna hefur sá sem keypti hann nýjan ekki séð ástæðu til þess að panta stóru OBC þar sem þessi minnsta er í honum ![]() Bíllinn er allur mjög vel farinn, ekinn 160 þús km. í dag Þetta er uppáhalds litasamsetningin mín og hefur verið lengi, þ.e. fjólublár bíll með ljósu leðri. Það sem ég er búinn að bæta og breyta síðan ég fékk hann er: 17" M3 felgur 7,5 að framan og 8,5 að aftan ef ég man rétt KW fjöðrun, gormar og demparar með 60/40 lækkun E46 m3 demparapúðar að aftan Xenon Short shifter Skipt um spyrnufóðringar að aftan og spindilkúlur að framan Skipt um bremsuklossa að allan hringinn og diska að aftan Svona leit hann út þegar ég fékk hann: ![]() Svona lítur hann út í dag: ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Fæðingarvottorðið: Vehicle information Type: 318IS (ECE) Dev. series: E36 (2) Line: 3 Body type: COUPE Steering: LL Door count: 2 Engine: M42 Cubical capacity: 1.80 Power: 103 Transmision: HECK Gearbox: MECH Colour: DAYTONA-VIOLETT METALLIC (283) Upholstery: LEDER CASUAL/HELLGRAU (P7TH) Prod. date: 1995-07-05 Order options No. Description 209 LIMITED SLIP DIFFERENTIAL (25%) 243 AIRBAG FOR FRONT PASSENGER 255 SPORTS LEATHER STEERING WHEEL 277 LT/ALY WHEELS DOUBLE SPOKE STYLING 302 ALARM SYSTEM 314 HEATED WINDSCREEN WASHER NOZZLES 337 M SPORTS PACKAGE 362 VENT REAR WINDOWS, ELECTRIC 401 SLIDING/VENT ROOF, ELECTRIC 428 WARNING TRIANGLE 473 ARMREST, FRONT 481 SPORT SEATS F DRIVER/FRONT PASSENGER 494 SEAT HEATING F DRIVER/FRONT PASSENGER 498 HEADRESTS IN REAR, MECHANIC. ADJUSTABLE 510 HEADLIGHT BEAM-THROW CONTR. F LOW BEAM 520 FOGLIGHTS 540 CRUISE CONTROL 556 EXTERIOR TEMPERATURE DISPLAY 564 INTERIOR LIGHT PACKAGE 669 RADIO BMW BUSINESS RDS 704 M SPORT SUSPENSION 801 GERMANY VERSION 915 BODY SKIN CONSERVATION, DELETION |
Author: | bjahja [ Wed 29. Nov 2006 17:10 ] |
Post subject: | |
Virkilega flottur bíll og á eftir að verða mun flottari fljótlega ![]() |
Author: | Alpina [ Wed 29. Nov 2006 17:12 ] |
Post subject: | |
Hef séð þennann bíl og þetta er .LÝGILEGA,, eigulegt eintak eins og formaðurinn nefnir réttilega er litasamsetningin,,flott og bíllinn vel með farinn ,, eitt er hægt finna að þessum bíl ef hægt er að nefna svo,, en fákarnir mættu vera fleiri Til hamingju með ...GRÍÐARLEGA góðan bíl |
Author: | íbbi_ [ Wed 29. Nov 2006 17:17 ] |
Post subject: | |
jáá ég hef séð þennan, alveg fáránlega heill, og vel búinn |
Author: | arnibjorn [ Wed 29. Nov 2006 17:18 ] |
Post subject: | |
Þetta er alveg geggjaður bíll! Lækkun og flottar felgur og þetta verður með flottari E36 á landinu ![]() ![]() |
Author: | srr [ Wed 29. Nov 2006 17:19 ] |
Post subject: | |
Ég sá þennan bíl daglega í nokkra mánuði þar sem fyrri eigandi á heima í sömu götu og ég. Slefaði alltaf yfir þessum lit í sumar, þetta er úber flottur litur á bílnum ![]() Fyrri eigandi hélt bílnum ALLTAF tandurhreinum og vel bónuðum í sumar. Eflaust fengið góða meðhöndlun hjá honum. Til hamingju með nýja bílinn ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Wed 29. Nov 2006 17:21 ] |
Post subject: | |
Flottur hjá þér Gunni, ég var einmitt næstum því búinn að kaupa þennann í haust en ákvað að skella mér í e30 deildina ![]() bjahja wrote: Virkilega flottur bíll og á eftir að verða mun flottari fljótlega
![]() Var verið að selja felgur eða? ![]() |
Author: | bjahja [ Wed 29. Nov 2006 17:23 ] |
Post subject: | |
Aron Andrew wrote: Flottur hjá þér Gunni, ég var einmitt næstum því búinn að kaupa þennann í haust en ákvað að skella mér í e30 deildina
![]() bjahja wrote: Virkilega flottur bíll og á eftir að verða mun flottari fljótlega ![]() Var verið að selja felgur eða? ![]() Reyndar ekki en svona fyrst þú minnist á það þá væru þær ekki slæmar undir honum gunni ![]() |
Author: | noyan [ Wed 29. Nov 2006 17:32 ] |
Post subject: | |
Hrikalega flottur ![]() |
Author: | Djofullinn [ Wed 29. Nov 2006 17:51 ] |
Post subject: | |
Gífurlega huggulegur bíll hjá þér Gunni ![]() |
Author: | siggik1 [ Wed 29. Nov 2006 18:59 ] |
Post subject: | |
fallegur litur og góður búnaður, var einmitt að kaupa mér 318is nýlega en aðeins verri ástandi ![]() ég sem héllt að lsd væri staðalbúnaður í is bílunum, minn bíll er snauður af búnaði ![]() |
Author: | freysi [ Wed 29. Nov 2006 19:02 ] |
Post subject: | |
Gullfallegur bíll og til hamingju með hann Gunni |
Author: | Gunni [ Wed 29. Nov 2006 19:50 ] |
Post subject: | |
Ég þakka hlý orð um bifreiðina ![]() Aron nei ég var ekki að versla af honum Bjarna, eru ekki einhver álög á Bjahja felgum ? ![]() |
Author: | bimmer [ Wed 29. Nov 2006 19:52 ] |
Post subject: | |
Flott litacombo. Til hamingju! |
Author: | Aron Andrew [ Wed 29. Nov 2006 19:55 ] |
Post subject: | |
Gunni wrote: Ég þakka hlý orð um bifreiðina
![]() Aron nei ég var ekki að versla af honum Bjarna, eru ekki einhver álög á Bjahja felgum ? ![]() Nei held að það sé bara myth ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |