E36 318is
Jæja, þá kom að því, fyrsti BMWinn kominn á planið
Þar sem að mér tókst með naumindum að troða mér í skólann að þá varð bíll í ódýrari kanntinum fyrir valinu, eða E36 318is
Bíllinn er árgerð 92´ og er ekinn 210.000km, liturinn er diamantswartz metallic (hvernig sem að það er skrifað)
Hann er að sjálfsögðu með rafmagn í rúðum, sem og topplúgu
Og aðalatriðið er náttúrulega læsta drifið!
Bíllinn er ekki með hálfa skoðun og nóg fyrir mig að bardúsa í honum á næstunni, sem að er bara gott
Einnig mun Kiddi koma til með að vera litla tíkin mín varðandi viðgerðir á honum
(redda manni varahluti á ókristilegum tímum og svo framvegis
) En við skiptum einmitt um spyrnufóðringar að framan í dag
Bíllinn er ekki mikið ryðgaður en grjótbarinn eins og ég veit ekki hvað!
En það mun að sögn vera aðallega vegna þess að þarsíðasti eigandi bjó í Sandgerði.
Meira síðar, ásamt myndum
Góðar stundir