Page 1 of 1

E34 5XX

PostPosted: Thu 11. May 2006 14:26
by Knud
Jæja þar sem ég er búinn að selja M20B25 vélina sem var í bílnum, þá verður maður bara að taka þetta með trompi og fá sér alvuru.

Það er um þessar mundir verið að leita að M60B40 fyrir mig. Hvort sem það verður bara vél og allir fylgihlutir eða tjónaður bíll, að aftan eða á hliðinni.

Miklar vangaveltur eru búnar að eiga sér stað um hvort hann ætti að vera beinskiptur eða sjálfskiptur. Líklegast verður nú fundinn Sjálfskiptur bíll, en ég meina draumurinn er að sjálfsögðu beinbíttað V8 powah!
Ætla samt ekkert að stressa mig á því, alltaf hægt að breyta og bæta seinna. Jújú held að það sé þægilegt að cruisa bara á sjálfskiptum og svona, en meiri upplifun sjálfsagt á beinskiptu...

Þegar bíllinn var á lyftu einu sinni prufaði ég að snúa afturdekkjunum, og þau snérust í sitthvora áttina. Mín fáviska um hvernig BMW læstu drifin sagði mér að þetta væri opið drif. En læsingin kemur náttúrulega ekki inn fyrr en það kemur visst átak á drifskaftið?
OG viti menn þegar drifskaftið kom í ljós að það var LÆST drif í bílnum og ég hafði ekki hugmynd um það, því er nú ver og miður(vildi einmitt ekkert vera taka á honum þar sem ég hélt þetta væri opið drif. Annars hefði ég átt margar góðar stundir að láta eins og api :)

Þannig að ég verð með 3:73 læst drif með þessum pakka, held það verði gaman.

Einnig verður reynt að lækka hann, stífari sway bars, flottar 17" sem ekki annar hver maður á.

Þetta er svona það helsta, langaði bara að koma frá mér það sem er í gangi um þessar mundir

PostPosted: Thu 11. May 2006 14:53
by ///M
Ef dekkin snúast í sitthvora áttina þá er það opið

PostPosted: Thu 11. May 2006 15:01
by moog
Það á að vera svona "tag" eða merki á drifinu með info um hlutföll og hvort það sé læst

Ég myndi tékka ef ég væri þú hvort það sé merkt S (fyrir Sperre = læsing auf deutsch) fyrir framan hlutföllin á drifinu... ef svo er, þá er það læst.

PostPosted: Thu 11. May 2006 15:05
by Knud
Tja já ég var nú búinn að fá staðfestingu hjá honum Kidda í tb, þannig að ég held að við getum alveg tekið mark á því...

Hann sá um að rífa vélina og dótið úr

PostPosted: Thu 11. May 2006 15:14
by Arnarf
Ég er allavega að fýla það í botn að hafa hann sjálfsskiptan :)
Veit ekki hvort ég myndi tíma því að breyta honum í bsk, algjör draumakrúser eins og er