Page 1 of 2
Bimminn sem ég átti áður með brotna rúðu

Posted:
Wed 23. Apr 2003 15:16
by Propane
Því miður á ég ekki skemmtilegri myndir af honum en þessar.
Ég þarf svo að setja myndir inn af því hvað kom síðan fyrir bílinn.


Posted:
Wed 23. Apr 2003 15:19
by Propane
BTW. Ef þið vitið hver braust inn í þennan bíl, þá vil ég gjarnan fá spilarann minn aftur. Viðkomandi getur hvort sem er ekki notað hann. Þetta var KAC9080R spilari.

Posted:
Wed 23. Apr 2003 16:03
by bebecar
Þetta er rosalegt maður!
Það er útaf svona gaurum sem ég geymi alltaf ísexi á góðum stað!

Posted:
Wed 23. Apr 2003 17:10
by bjahja
Hvað er í gangi, það er verið að brjótast í alla bíla, núna er ég ánægður að vera bara með bmw cd spilara og engan radarvara.
Skildu þeir magnaran eftir í skottinu?

Posted:
Wed 23. Apr 2003 18:32
by Haffi
Minn pípir á þig ef þú ert of nálægt og um leið og þú tekur aðeins í húninn þá hvæsir hann á þig og ef þú snertir hann aðeins fastar þá ÖSKRAR hann á þig þannig að hún er alveg að virka.

Posted:
Wed 23. Apr 2003 19:48
by Heizzi
Hvað borgarðirðu fyrir þessa þjófavörn Haffi?

Posted:
Wed 23. Apr 2003 20:50
by saemi
Þetta er ekki þjófavörnin, hann er bara að tala um eigandann
Haffi wrote:Minn pípir á þig ef þú ert of nálægt og um leið og þú tekur aðeins í húninn þá hvæsir hann á þig og ef þú snertir hann aðeins fastar þá ÖSKRAR hann á þig.
Sæmi ...

Posted:
Wed 23. Apr 2003 22:34
by Haffi
hehe ég er nú bara með BMW þjófavörn í mínum

en já ég er að tala um sjálfan mig. Sef alltaf með opinn gluggan og bíllinn er lagður fyrir utan gluggan. Og ég vakna alltaf við öll óeðlileg hljóð þ.e.a.s. bílar sem eiga ekki heima þarna!


Posted:
Thu 24. Apr 2003 02:13
by Heizzi
He he
Það hlaut að vera

En ég væri nú samt alveg til í að bíllinn minn hegðaði sér svona, heyrðu Haffi hvernig væri að þú myndir bara sofa í bílnum mínum


Posted:
Thu 24. Apr 2003 02:18
by Haffi
Tjahh ég er ekki ódýr... Ég er ekki ódýr myndi segja 65.000kr. nóttin og svo get ég ekki skilið kærustuna eftir þannig að þetta væri svona 10.000.000 króna pakki sko! :> fá sér bara skúr ég skal hjálpa þér að smíðann hef oft sett saman ikea hillur fyrir vini mína


Posted:
Thu 24. Apr 2003 02:40
by Heizzi

Posted:
Thu 24. Apr 2003 10:38
by Propane
Magnararnir voru skrúfaðir niður með Torks-skrúfum, Þjófarnir voru ekki mjög vel græjaðir, þannig að þeir misstu af tveimur PS-Mögnurum (80þ kall stykkið) og einum rockford magnara.
Ég var búinn að vera með bílana mína pakkaða græjum í 4 ár þegar þetta gerðist. Þessa nótt var bíllinn minn að koma úr viðgerð og eigandinn á verkstæðinu setti hann út um kvöldið. Ég var búinn að aftengja þjófavörnina áður, svo hún myndi ekki væla á hann....Bömmer!!!
Einhverjir ykkar muna kannski eftir einhverjum af þeim bílum sem að ég átti með helling af græjum í: Silvurlitaða Kenwood Mazdan og svo Rockford Broncoinn.

Posted:
Thu 24. Apr 2003 22:59
by Propane
Tjekkið samt á hinar myndirnar af honum inni á Áhugaverðir bimmar undir BMW kemst allt

Posted:
Fri 25. Apr 2003 00:03
by flamatron
Er þetta bílinn sem "Dufan" var að selja hérna áður??


Posted:
Fri 25. Apr 2003 00:15
by hlynurst
Var það ekki 325? Þetta er 318...