BMW 525iA E34 - Diamantschwarz
Já ég er loksins búinn að láta verða að því. Ég keypti mér BMW og auðvitað varð ég að monta mig hér hehe. Fyrir valinu varð þessi glæsilegi E34 525iA Demantssvartur með topplúgu og fínerí. Fluttur inn til landsins í Október 1997. Fékk hann með 17" að framan en 16" að aftan, alveg eins felgur fyrir utan stærðir. Tók nokkrar myndir af honum með 17" allan hringinn en fékk svo lánaðar Rondell 58 17" felgurnar hans Viktors (Angelic0-), get ekki annað sagt en að þær fara honum miklu betur, þó að kanturinn er handmálaður!
Hér eru allavega myndirnar, njótið vel
Nú er bara málið að taka sér tíma til að venjast bíl með svona breiðum dekkjum og afturhjóladrif. Ég mun ss. keyra hann einsog kelling fyrstu dagana þar sem þetta er allra fyrsti afturhjóladrifni bíllinn sem ég keyri eitthvað af viti. Hef keyrt 1 annan, Toyota Hiace turbo deisel