Page 1 of 3

540i 2000 árgerð shadowline =Update nýjar myndir bls2

PostPosted: Sat 19. Nov 2005 17:49
by ice5339
2000 árgerð með leðri, sjálfskiptur og sitthvað fleira.
Þetta er fyrsti bimminn minn en ég smitaðist af félaga mínum sem ekur um á 540 bíl, algjör draumur að keyra þann kagga.

PostPosted: Sat 19. Nov 2005 17:51
by Angelic0-
Ég krefst þess að fá betri specs :D

Skrifaðu nú góðan artikel um kaggann !

*edit*

Gleymdi víst að segja til hamingju með glæsilegan grip !

PostPosted: Sat 19. Nov 2005 17:55
by bjahja
E39 er gríðarlega flottri shadowline 8)
Lítur mjög vel út og flottar felgur, til hamingju með bílinn

PostPosted: Sat 19. Nov 2005 17:59
by ice5339
hehe ég er nú ekki með alla specs alveg á hreinu, nema að hann er ekinn um 119 þús og mun vera í mjög góðu standi, þéttur og góður.
Síðan mun vera rafdrifin og rafhituð sæti, cruisecontrol, magasín, bakkskynjari, sjálfdekkjandi speglar, abs, spólvörn einhver skriðvörn eða álíka, 17" álfelgur, bridgestone bizzak dekk og Dunlop dekk (minnir mig), og margt fleira.

Síðan auðvitað gulrótin 286 hestar.

Þá vantar bara icelink fyrir ipodinn og þá er maður nokkuð góður.
Er icelink dæmið selt hérna á klakanum ?

PostPosted: Sat 19. Nov 2005 18:04
by Logi
Til hamingju með stórglæsilegan bíl!

Hvenær er hann væntanlegur á klakann?

PostPosted: Sat 19. Nov 2005 18:04
by gunnar
Mjög flottur, svo er bara að skella xenon í hann og þá verður hann óaðfinnanlegur :wink:

PostPosted: Sat 19. Nov 2005 18:09
by ice5339
Takk fyrir það félagar.

Bíllinn er væntanlegur í næstu viku, mig minnir að það hafi verið sagt að það væri xenon ljós í honum en ég gæti haft rangt fyrir mér.

Þetta verður smá munur að fara frá 1.6l 104 hestum í þennan.

PostPosted: Sat 19. Nov 2005 18:46
by Fjarki
Glæsivagn.

En hvernig bíl áttirðu??

PostPosted: Sat 19. Nov 2005 19:48
by ice5339
Golf 2003.

PostPosted: Sun 20. Nov 2005 19:22
by basten
Það er xenon í bílnum.

Til hamingju vinur! Hlakka til að fá rúnt með þér á vel völdum stað :wink:

PostPosted: Sun 20. Nov 2005 19:31
by bimmer
Til hamingju með bílinn.

Svartir bimmar eru alltaf klassískir.

Það eina sem þyrfti að gera fyrir þennan IMHO er að setja á hann facelift ljósin með angel eyes.

PostPosted: Sun 20. Nov 2005 22:36
by Alpina
Mjög,,,,,,,, kunnuglegur ........ staður sem myndirnar eru teknar á :wink:

PostPosted: Sun 20. Nov 2005 22:40
by basten
Alpina wrote:Mjög,,,,,,,, kunnuglegur ........ staður sem myndirnar eru teknar á :wink:


Hehehehehe mér finnst að Smári eigi að fara pósa með á myndunum sem hann sendir :D

PostPosted: Tue 29. Nov 2005 08:18
by ice5339
Jæja, þá er dýrið komið á klakann.

Hrikalega skemmtilegt að keyra gripinn, enda komnir um 800 km á nokkrum dögum hehe

Ég á reyndar eftir að fara og bóna bílinn og mun þá pósta fleiri myndum.

Búnaður: Sjálfskiptin (steptronic), rafdrifin rafhituð sæti, xenon ljós, gler topplúga, professional hljómflutningskerfi, geisladiskamagasín, 17" álfelgur, svört leðursæti, búnaður sem fylgist með loftþrýstingi dekkja, aksturstölva osf osf.
(úps smá viðbót) einnig: Cruise control, sjálfsdekkjandi baksýnisspegill, bakkskynjarar, og útvarpsstillingar í stýri, abs, spólvörn, skrikvörn osf

Eitt er víst að maður verður að passa sig hrikalega á hraðanum á þessu, enda var ég fljótur að láta aksturstölvuna pípa á mig í 100 km/klst (svona innanbæjar).

Eitt annað, ef maður stoppar á ljósum við hliðina á Imprezu turbó eða álíka bíl, þá undantekningalaust byrjar gaurinn á imprezunni að þenja vélina og rýkur síðan á stað þegar það kemur grænt (þetta gerðist ekki oft á Golfinum)

PostPosted: Tue 29. Nov 2005 08:24
by Knud
Virkilega fallegur bíll 8)

Til hamingju með þennan :)