bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að klárast https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=11326 |
Page 212 of 214 |
Author: | fart [ Thu 12. May 2022 10:07 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
Krafturinn lifi! Kem með smá update fljótlega á Græna kvikindið, fullt af vinnu í gangi |
Author: | bimmer [ Thu 12. May 2022 17:24 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
fart wrote: Krafturinn lifi! Kem með smá update fljótlega á Græna kvikindið, fullt af vinnu í gangi Fínt að eiga "söguna" hér FB sökkar í því. |
Author: | bimmer [ Tue 24. May 2022 15:04 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
M5 endurnýjun heldur áfram. Um daginn breyttist "Skellum nýja KWv3 í að aftan" yfir í "endurnýjum allt í afturstellinu og setjum nýjar bremsulagnir". Þannig að.... enn ein óplönuð Schmiedmann pöntunin og aukaverk sem ekki var planað! Kassinn frá þeim kom í hús rétt fyrir helgi og við Markús búnir að vera duglegir um helgina. Aðallega Markús samt. Það gleymdist að panta fóðringar fyrir drifið en E13 Mótorsport bílskúrinn deliveraði enn og aftur, þær voru til uppi í hillu. Droppuðum subframeinu og þrifum það aðeins upp. Svo skipti Markús um fóðringar ofl. meðan ég hélt áfram að þrífa parta og mála smá. Notuðum sénsinn og ég pússaði upp yfirborðsryð undir bílnum að aftan og grunnaði. Þetta er svona "quick and dirty" djobb enda þarf bíllinn að fara að komast á götuna. Svo voru nýjar bremsulagnir settar undir að aftan og kláraðist það seint á sunnudagskvöldið. Þannig að næsta skref í vikunni er að skutla subframeinu undir aftur ásamt nýju fjöðruninni. Myndir af þessum æfingum: Lengsti Schmiedmann pakkinn hingað til. Aðallega út af bremsulögnum. Ekki alslæmt ástand miðað við 22 ára bíl. "Nýja" drifið frá 2006 orðið vel crusty. Verður addressað síðar, ekki tími núna. Búið að græja vinnupláss fyrir Markús, allskonar dót komið út. Sénsinn notaður til að þrífa það. Olíuhreinsir og háþrýstidæla, nokkrar umferðir. Smá "mechanical persuasion" á gamla dótið. Passað upp á ballansinn á lyftunni....... Subframe á leiðinni niður.... Gekk eins og í sögu. Preppað fyrir flutning. Ákveðið að skola aðeins af stellinu þó það hafi nú ekki verið planið..... Kom glettilega vel undan þessu. Bunki af dóti til að skipta um. Mikil skemmtun hjá Markúsi að ná þessu í sundur Á meðan Markús barðist við fóðringar og fasta bolta þá var Tubi kerfið farið að líta vel út eftir 5-6 umferðir af olíuhreinsi og háþrýstiþvotti. Byrjaður að pússa yfirborðsryð af..... Fyrst að maður var að splæsa 2K brúsa þá grunnaði ég nokkra aðra parta. Skellti svo á þessa punkta sem ég pússaði upp. Þetta verður að duga í bili Dótið komið aftur frá Markúsi. Skellti svo svörtu á hitt dótið. Fórum svo að skipta um bremsulagnirnar að aftan og...... þær voru þokkalega komnar á tíma, þarna má sjá hvernig önnur brotnaði við lítið álag.... Markús fór hamförum í að beygja þetta rétt. Og svo var þessu slædað á réttan stað. |
Author: | bimmer [ Thu 29. Sep 2022 12:07 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
Jæja loksins einhver update og verða mörg dagsett aftur í tímann. Hafði ekki tíma til að documenta allt áður en við fórum til Þýskalands í 50 ára afmælisferð ///M. Þannig að ég set hér pósta og dagset þá aftur í tímann. [25. maí, 2022] SC olíukælar, bracket, olíuleiðslur og stuðarafestingar málað. Bremsulagnatengi orðin crusty. Ný olía fyrir gírkassann. Að gera okkur klára í að setja hrað-endurnýjað subframe aftur á sinn stað. Komið á sinn stað. Blásarar og bracket undirbúið fyrir smá þrif. Hellingur af pörtum sem á eftir að installa. Markus er með sína task lista! Verkefnastjórinn Elmar kemur og tékkar hvort við séum ekki á réttri leið. Fundum út að ballansstangarendar voru í verra standi en búist var við - auglýsgum á FB og Aron Emil var ekki lengi að birtast með einn sem hann átti Blásarar farnir að líta betur út. Svo var röðin komin að plenuminu. Á endanum var ég ekki nógu ánægður með útkomuna þannig að þetta var sent í sprautun. Næst var komið að intercoolernum, byrjaði á að þrífa hann. Allt í kringum blásarana, rör, hosur, tengi, BOV þurfti að græja líka. Aðrir hlutir sem voru orðnir ljótir voru blásnir. Markús er mjög vandvirkur með samsetningarfeitina. Öxlar að fara í. Málað.... Byrjað að setja hlutina á höbbana. Farið að taka á sig mynd. Komið í. Byrjaðir að vinna í KWv3 að aftan. Sett í. Gamla settið verður sent til Svíþjóðar þar sem einn félagi minn ætlar að reyna að rebuilda Næstum komið.... |
Author: | bimmer [ Thu 29. Sep 2022 13:24 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[27. maí, 2022] Við það að klárast. Framendinn líka... Flugmaðurinn kom í úttekt. Markús að blanda special blöndu af feiti. Plenumið þurfti nýtt ///M merki og ég fann eitt nýtt í skúrnum sem ég keypti fyrir mörgum árum. Smá Brembo servicing. Næst var að setja pústið undir. Nýir skynjarar. Meðan Markús var að slást við pústið byrjaði ég að þrífa hitahlífarnar. Þurfti að pússa smá til að pústið færi saman. |
Author: | bimmer [ Thu 29. Sep 2022 13:44 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[28 maí, 2022] Smá refurb á pústfestingum. Nokkrar umferðir af tjöruhreinsi og smá skrúbb farið að virka. Skúrinn alltaf í rúst Intercooler orðinn þokkalega hreinn svo að ég byrja að mála.... Þurfti smá meiri slípivinnu til að pústið færi saman. Tubi Rumore ready til að fara undir. Markús virðist pínu áhyggjufullur.... Nokkrar umferðir á intercoolering og hann er farinn að looka súper nice. Loka prepp áður en við lyftum Tubi Rumore undir. Þetta pústbracket og gúmmí verður endurnýjað síðar. Komið á sinn stað! Gekk ekki án smá bardaga - þegar við vorum komnir með það á sinn stað þá rann kerfið aftur út og datt beint ofaná Markús. Ekki beint léttavara þannig að Markús var haltur í 2 daga. Hættulegt starf! Intercooler ready. Búið að mála tengin á olíuleiðslum fyrir blásarakerfið. Búið að stilla af pústið. |
Author: | bimmer [ Thu 29. Sep 2022 18:16 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[28. maí, 2022] Nurburgring race í sjónvarpinu til að mótívera okkur.... Skipt um bremsulagnir að framan. Markús og task listinn... verið að strika yfir..... Verkefnastjórinn mættur.... Skipt um hosuklemmur á pústi. Okkur tókst að skemma eina vírofnu bremsuslönguna, keypti eina frá UK sem var of stutt einhverra hluta vegna. Endaði á að panta nýtt sett frá USA. Næst voru það SC rör og blowoff ventlar sem þurfti að refresha. Verða að looka vel til að það sé hægt að installa með hinu. Þurfti smá ofbeldi enda allt frekar ryðgað. Farið að líta betur út. Blowoff ventlar þurftu helling af tjöruhreinsi og skrúbbi. Greinilegt að hér höfðu pulleyar verið að nuddast upp við blásarabracketið. Berio kíkti við til að sýna okkur hvernig á að gera þetta. Markús hafði enga, og ég meina ENGA þolinmæði fyrir þessu og jók ofbeldið. Komið í og nú ættu pulleyar ekki að vera að röbba. Einn boltinn var að stríða okkur. Markús tók stund í að velta fyrir sér hvað hann hafði valið sér að gera í lífinu..... En svo bara fræsti hann áfram Ryðgaði strekkjarinn og hjólið var skipt um síðar. Var búinn að source nýtt flexirör sem liggur frá loftsíu að blásara farþegamegin. M3 að hverfa undir partahrúgu! Önnur hliðin að verða ready og lookar vel með nýjum hosuklemmum. Hef tekið eftir að mekkarnir sem ég er að vinna með gefa mér þetta augnarráð þegar ég er svolítið obsessive í að hreinsa/refurba hluti Blowoff ventlarnir voru mjög subbulegir. Loftsíur græjaðar. Blásarareim komin á sinn stað, eitt frægasta reimasystem landsins. |
Author: | bimmer [ Thu 29. Sep 2022 20:20 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[30. maí, 2022] Frambitinn settur á. Nóg pláss áður en AC og vatnskassi eru settir í. Beltasúpa. Markús tók eftir vírum sem voru orðnir eitthvað lasnir þannig að það var skipt um þá. Vorum farnir að vera nokkuð vissir með okkur þannig að við hlóðum rafgeyminn. AC condenser og vökvastýriskælir renna á sinn stað. Nýir O hringir allstaðar. Allt smurt sko.... Þetta var eins langt og við náðum, ákváðum að setja ekki í gang. Nú var Markús að detta útúr projectinu í nokkrar vikur þar sem hann var að kaupa íbúð og mikið að græja þar. |
Author: | bimmer [ Thu 29. Sep 2022 20:29 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[3. júní, 2022] Brasarinn kíkti við - fáir sem þekkja bílinn jafn vel og hann. Skiptum um ónýtu bremsuslönguna þannig að hægt væri að fara með bílinn í hjólastillingu. Skúli í Partout reddað mér svo ABS heila, gamli var með stæla. Þegar ég hafði samband við hjólastillingasjoppur þá gufaði áhuginn á að hjólastilla bílinn upp þegar ég sagði að hann væri vélarvana og þyrfti að ýta honum. NEMA hjá Hjólastillingum upp á Höfða, þar var hugsað í lausnum!! Þannig að bílnum var skutlað á bílaflutningabíl. Settum plast yfir throttle bodyin. Blautt!!! Komnir upp á Höfða til Alberts. Verið að stilla. Notuðum sénsinn á að herða upp á fóðringum sem þarf að gera þegar hann stendur í hjólin. Nokkur rolling skot á heimleið. Komnir heim. |
Author: | bimmer [ Thu 29. Sep 2022 22:50 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[7. júní, 2022] [T mínus 31 dagar - þe. 31 dagur þar til bíllinn fer í skip til Rotterdam í 50 ára ///M afmælisferðina] Ok komið að stóra deginum, Hr. X að mæta aftur. Ég, Markús og aðrir höfum unnið að því að græja sem mest í bílnum áður en hann kom. Þess vegna vorum við að græja hjólastillingu þó bíllinn væri ekki kominn í gang. Þannig gætum við byrjað að keyra eins fljótt og hægt er og komið honum í gegnum skoðun. Þurftum að versla smá um leið og hann kom. Mikilvægast að kaupa nýjan skjá á laptopinn hans. Skjárinn smallaðist þegar sætisbeltisfesting rakst í hann deginum áður. Sem betur fer átti Origo þetta á lager. Fórum síðan í Hydroscand að láta græja nýjar olíulagnir fyrir blásarana. Mér tókst nefnilega að eyðileggja eina af þessum gömlu..... Grjæjuðu nýjar á no time. Hr. X var eins og krakki í nammibúð, keypti eitthvað af dóti til að nota í Mustanginn hans. Skipt um skjáinn. Eftir það snérum við okkur að M5 og reyndum að setja í gang. Fundum út að hann var ekki að fá bensín. Grunuðum strax bensíndæluna. Þar sem ég var með nýja Bosch 044 uppi í hillu þá fórum við í að skipta um hana. Þegar við vorum búnir að losa gömlu úr þá fundum við út af hverju hann var ekki að fá bensín og það var ekki næs. Ein af bensínslöngunum í tanknum var ekki gerð til að vera ofaní bensíntanknum. Hafði verið að skemmast jafnt og þétt síðan 2006 og hefur ekki verið að halda þrýstingi undir lokin. Þetta gæti vel verið ástæðan fyrir að mótorinn fór. Við tókum slöngu af nýrri stock eldsneytisdælu sem ég átti í skúrnum af einhverri ástæðu. Rétt áður en við settum þetta oní. |
Author: | bimmer [ Sat 01. Oct 2022 12:05 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[8. júní] [30 dagar í skip] Þennan dag var Hr. X busy við að tjúna aðra bíla en við náðum að vinna smá í M5. Fékk lánaðan topp til að herða öxulrærnar. Nýr strekkjari settur í. Nú var komið í hús sett af vírofnum slöngum frá USA sem eru í réttum lengdum þannig að við skiptum um þessa stuttu. Nýmálað plenum komið í hús. |
Author: | bimmer [ Sat 01. Oct 2022 12:21 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[9. júní, 2022] [29 dagar í skip] Vatnskassi og hosur komið í og búið að fylla á kælivökva. Byrjað að setja saman kæla/bracket fyrir blásara og tengja leiðslur. Gott að hafa pro teikningar af því sem REALOEM er ekki að covera. Auðvitað gat þetta ekki gengið smooth..... sáum smá dropa á vélinni.... því miður í sama lit og kælivökvinn. Dropi sést í speglinum undir rörinu frá vatnsdælu. Þannig að vökvanum tappað af og lagst á bæn um að við náum að útvega þessa O hringi hratt. Helvítis O hringir fyrir vatnsdælurörin. Þetta var auðvitað ekki til í BL en Landvélar áttu. Sett aftur í. Allt komið. Þurftum eiginlega ekki þennan útúrdúr/aukaverk miðað við hvað dagskráin var þétt, Hr. X bara í eina viku. |
Author: | bimmer [ Sat 01. Oct 2022 12:35 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[10. júní, 2022] [28 dagar í skip] Skipti um pústklemmur og betrumbætti festingar á diffuser. Intercooler kominn í. Settum í gang en komumst að því að bank2 Vanos var ekki að hegða sér, var ekki að ná þeim gildum sem tölvan bað um. Upnuðum upp ventlacover og gátum ekki séð neitt í ólagi, knastásinn gat alveg hreyfst, ekki þvingun í vanosi. Þannig að við fórum að skoða solenoid. Sáum að sum voru ekki að virka rétt og skiptum um. Á endanum komumst við því að sjálft solenoid borðið var bilað, andsk. Ekki beint auðvelt að útvega í hvelli. Þannig að ég sendi út neyðarkall til BMW samfélagsins kl. 2 um nóttina. |
Author: | bimmer [ Sat 01. Oct 2022 12:50 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[11. júní, 2022] [27 dagar í skip] Gærdagurinn endaði ekki vel en dagurinn í dag byrjaði vel!!! Bjargvætturinn Ívar Þórsson mætti fyrir hádegi með solenoid borð! Skelltum því í og það virkaði perfect! Þannig að þrif/refurbing hélt áfram. Nýjar húddfestingar. Gömlu alveg búnar. Miklu betra! Héldum svo áfram að setja saman blásarakerfið. Plenum plötur komnar á sinn stað. Plenum að fara á sinn stað. Velocity stacks komnir á. Farið að líta út eins og S62 Nú var að koma að því að setja húddið á þannig að það þurfti að þrífa það. Framendinn að taka á sig mynd, ljósin komin á. Mest af blásara pípulögnum komið í. Framstuðari þrifinn áður en hann fer á. Farið að líta út eins og bíll! |
Author: | bimmer [ Sat 01. Oct 2022 13:10 ] |
Post subject: | Re: E39 M5 - '99 Avus Blau - kominn aftur og alveg að kláras |
[12. júní, 2022] [26 dagar í skip] Byrjuðum daginn á að taka loka snurfus á vélarsal. Bíllinn loksins kominn út, Hr. X dáist að eigin vinnubrögðum Húddið á og snöggur þvottur. Tilbúinn í fyrsta road test. Fyllt á með DÝRU bensíni Smá pit stop til að kíkja á Europameister og þá var orðið nokkuð ljóst að vökvastýrið var ekki að virka alveg, var að detta inn og út á lágum hraða. Þannig að Ívar bjargaði okkur aftur og fengum lánaða dælu hjá honum. Urðum að droppa blásarabracketinu til að skipta. Eftir að við skiptum komumst við að því að vandamálið var ekki farið. En með því að keyra meira þá batnaði þetta. Og við fundum líka út að vanos solenoid vandamál voru ekki alveg farin á bank1. Þannig að við skiptum um: Við náðum að komast aftur af stað og ná almennilegum test rönnnum um kvöldið/nóttina þangað til að það byrjaði aftur að rigna. Einfaldlega of hættulegt að halda áfram á gömlum dekkjum (Toyo frá 2011 og 2015). Það var semsagt um 2:50 um nóttina sem við skelltum bílnum í skúrinn, orðnir nokkuð vissir um að allt væri orðið eins og það ætti að vera. Bíllinn var ekki byrjaður að kólna þegar við skáluðum í Faxe Kondi og vorum strax byrjaðir að ræða hvað við myndum gera varðandi E30 M3. Engin hvíld!!! Morguninn eftir keyrði ég hann svo út á völl ásamt syni hans sem var með honum í þetta skiptið. Einhvern veginn enda allar hans heimsóknir á því að við klárum það sem á að gera í mínum bíl 3 um nóttina áður en hann fer |
Page 212 of 214 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |