bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bílaeignin
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=5&t=10596
Page 1 of 5

Author:  zazou [ Sun 22. May 2005 02:41 ]
Post subject:  Bílaeignin

Mér datt í hug að starta þræði um BMW feril meðlima.

BMW 320 '82 Sá fyrsti
1 bíll á milli
BMW 323i '81 Varð að prófa að eiga 323i
3 bílar á milli
BMW 520i '87 Máttlausasti bíll sem ég hef átt
7 bílar (2 enn í minni eign) á milli.
Alpina B10 V8 '00 núverandi

Author:  íbbi_ [ Sun 22. May 2005 04:40 ]
Post subject: 

Sjálfur Hef ég átt alltof fáa!,
En ég hef verið með þessa tegund undir "smásjánni" nokkuð lengi og búin núna í dáldin tíma að vera dunda við að hjálpa félaga mínum við rif og viðgerðir á þeim,

Fyrsti Bimmin minn var 91 árg af 735ia,
fékk hann rétt fyrir versló á síðasta ári,
Granitsilber, með leðri, lúgu, AC og tvöfalldri miðstöð og mörgu flr og einn tveggja E32 bíla sem ég hef séð sem er ekki með armpúða á framsætunum,
Þessi bíll var bókstaflega æðislegur, virkilega heill og óslitin í akstri, Mökkvann eins og enginn M30 bíll sem ég hef ekið hingað til (e32 þ.e.a.s)
ekki laust við að ég sé farin að dauðsjá eftir honum sona þegar á líður,

Image
Image
þvílíkt bjúútí,

Þegar ég seldi hann keypti ég af félaga mínum 89 730IA sem ég hafði haft augastað á í dáldin tíma, reyndar upprunalega til að rífa, en þegar ég fór að skoða bílin betur þá var hann alltof góður til að fara útí soleiðis vitleysu, lítið ekin og bara í fínu standi, það virðist þó svífa einhver óheillastjarna yfir greyjinu, því að fyrst byrjaði einn á því að bakka inn í hliðina á honum, síðan eins og þið munið eftir tóku illa skeindir krakkaandskotar sig til og rispuðu hann og dælduðu allan hringin, þannig að akkurat þessa stundina er ég sona að íhuga hvað gera skal.. ég hugsa þó að ég máli hann og búi mér til næs "deilídræver" því að þrátt fyrir skemmdirnar frá krakkabjánunum þá er bíllin sem slíkur mjög góður, er með eitt og annað tilbúið "á kantinum" fyrir lýtaaðgerðina, eins og gardínu miðjustokk hurð og flest allt sem til þarf í skruggukerru..
síðan væri svosum hægt að seljan ódýrt bara líka :roll:
Image
Image
það sem kitlar mig við þennan bíl er eflaust það að hann er svartur með dökkar rúður og svörtu leðri, combó sem fer þessum bílum afar vel finnst mér

Author:  F2 [ Sun 22. May 2005 04:53 ]
Post subject: 

.

Author:  Kristjan [ Sun 22. May 2005 08:33 ]
Post subject: 

Ég hef bara átt einn BMW og það var E34 530iA sem var smíðaður örugglega einhverntíman snemma á því herrans ári 1989 í Dingolfing en hann kom svo á götuna í maí og var keyptur nýr af kjötbankanum fyrir bankastjórann.

Ákaflega góður bíll sem reyndist mér vel þótt ég hefði viljað hafa spólvörn eða læst drif í honum því hann var ekkert spes í snjó blessaður.

Næsti BMW er mjög sennilega bara að bíða eftir því að ég drullist í bankann og millifæri á Smára. :wink:

Image

Author:  Einsii [ Sun 22. May 2005 11:02 ]
Post subject: 

Byrjaði á E36 318is sem er náttúrulega bara snilld sem fyrsti bíll.. Svo kom smá hliðarspor með einhverjum japana sem ég tók uppí en ég reddaði því með að kaupa E28 528ia til að keyra um á meðan hinn fékk að dúsa á sölu.. svo skipti ég yfir í núverandi E34 535i en er því miður að selja þann bíl vegna íbúðarinnar.. svo verður bara að koma í ljós hvað ég geri næst, vonandi get ég haldið mér við bmw.

Author:  bebecar [ Sun 22. May 2005 11:58 ]
Post subject: 

Byrjaði á E34 M5 - ekki hægt að byrja á betri bíl :wink: Yndislegur bíll í alla staði, solid og setti standardinn, ekki hægt að fara í einhverja softcore græjur hér eftir.

Þarnæst - skiptum við Logi á bílum, ég fékk E21 323i - sömuleiðis yndislegur bíll og afskaplega hardcore.

Og núna - loksins - E30 325i Touring... búin að bíða lengi eftir slíkum bíl - sömuleiðis ansi hardcore bíll en gott efni, vel farin að innan sem að utan. Fínn efniviður í betrumbætingar (sem núna eru skyndilega mun ódýrari fyrir mig þar sem maður er svo vel staðsettur!)

Author:  fart [ Sun 22. May 2005 13:21 ]
Post subject: 

Pre bílpróf:
7 bílar c.a.

Post bílpróf:
1 xxx
1985 BMW 318i 4door
9 xxx
1992 BMW 318iA
2 xxx
1992 BMW 325iS Coupe
2 xxx
1994 BMW 318iA
1987 BMW 318i 4door
1994 BMW 316i
2 xxx
1998 BMW 323iA E46 VOLLAUS
4 xxx
1996 BMW 523i
5 xxx
2000 BMW M5
1 xxx

xxx = aðrir

Author:  iar [ Sun 22. May 2005 13:35 ]
Post subject: 

Enn einn bílaeignarþráðurinn... :-)

Fyrst var það E36 316i '92:
Image

Því næst E46 318i '01:
Image

Og loks núverandi, E36 328i '96:
Image

Author:  Svezel [ Sun 22. May 2005 14:08 ]
Post subject: 

1. xxx '99
2. E39 520iA '98
Image
3. xxx '01
4. E36/8 Z3 Coupe 2.8 '99
Image

Author:  Logi [ Sun 22. May 2005 14:22 ]
Post subject: 

E21 323i árg '81 (Keyptur '98, seldur '03)

E21 316A árg '82 (Keyptur '99, rifinn '00)

E21 323i árg '82 (Keyptur og rifinn '00)

E34 M5 árg '90 (Keyptur '03, seldur '04)

E36 316i Compact árg '99 (Keyptur '04, seldur '04)

E34 525i árg '92/93 (Keyptur '04, still driving :D )

Author:  gunnar [ Sun 22. May 2005 14:23 ]
Post subject: 

BMW E36 320IA 1997 árgerð


Svo BMW E30 316 1987 árgerð

Author:  Vargur [ Sun 22. May 2005 14:46 ]
Post subject: 

Bmw 520 árg 1977
Bmw 315 árg 1980 E-21
Bmw 318i árg 1981 E-21
Bmw 732i árg 1981 E-23
Bmw 316 árg 1985 E-30
Bmw 745i árg 1981 E-23 8)
Bmw 325i árg 1992 E-36
Bmw 525d árg 1994 E-34
Bmw 523i árg 1996 E-39
Bmw 730i árg 1995 E-38
Bmw 750i árg 1996 E-38 8) :argh:
Bmw 320d árg 1999 E-46

Author:  Schnitzerinn [ Sun 22. May 2005 14:50 ]
Post subject: 

Ég hef nú bara átt einn BMW en þeir verða eflaust MUN fleiri í náinni framtíð 8) :D Það er '91 E34 525i sem ég flutti inn með aðstoð Smára.

Image

Svo er M5 auðvitað efst á lista 8)

Author:  jens [ Sun 22. May 2005 15:25 ]
Post subject: 

3 stykki hef ég átt en verið óvirkur í langan tíma en stefnan er E39 sem aðalbíll en E30 sem leiktæki.

My BMW history

Author:  Einsii [ Sun 22. May 2005 15:34 ]
Post subject: 

hmm.. einsog í einum eldri sona þræði.. fyrst aðrir eru orðnir sona advanced með myndr og allt

Fyrst bíllinn minn bara yfir höfuð var:
E36 318is
Image
Image

Svo var það E28 528iA
Image
Image
og video ;)

Og núna er það E34 535i
Image
Image

Page 1 of 5 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/