3000gtvr4 wrote:Hvernig er það er það er satt að bílinn sem að skila næstum 600hp í hjól??? Og bílinn er með blásara???
Rosalegar sögur sem maður er frétta af þessum bíl núna
Ekki út í hjól en eitthvað nálægt þessu við sveifarás.
Ég á ekki dyno af bílnum eins og hann er núna en fyrr í sumar var hann að mælast 570hp og 708Nm.
Það eru komnir í hann 2 Rotrex blásarar og front mount intercooler. Þetta var sett í hann í sumar og eftir það fór allt í steik - stimpill brotnaði og blokkin sprakk (allt á cyl 7).
Eftir þetta var sett í hann slífuð blokk (a la Discovery Automotive), þrykktir stimplar og þjappan lækkuð í 10.5:1. Allt draslið balancerað.
Á ekki dyno eftir að þetta var gert.
Bíllinn er næstum tilbúinn eftir þessa aðgerð - þarf að laga mappið milli 4500 og 5500 rpm, hann er of ríkur þar og bíllin cuttar til baka power sem er bara leiðinlegt. Það kemur einhver spesíalisti fljótlega að utan til að laga þetta.