Pantaði fyrir rúmu ári olíuhita og þrýstingsmæli frá autometer ásamt plötu sem kemur yfir þar sem öskubakkinn var áður og hafði aldrei komið mér í að setja þetta í bílinn ... núna er þetta alveg að verða ready loksins
Fékk meðlim á spjallinu til að renna fyrir einskonar T stykki sem ég skrúfa upp þar sem orginal olíuþrýsingsrofinn kemur í blokkina. Þetta er stykki sem er með 12x1.5 utaná gengjum og borað í gegn og á hinum endanum er 12x1.5 innaná gengjur sem rofinn skrúfast svo upp í.
Þarna lét ég setja 3x göt sem eru tilbúinn fyrir 1/8 NPT gengjur og mun ég taka þar út
1. olíuna fyrir túrbínuna
2. Olíuhitanema (Ég nenni ekki að taka pönnuna undan og setja hann þar)
3. Olíuþrýstingsnema
Hitaneminn er svolítið langur þannig að ég fékk Sigga(spofus) til að græja eins konar tappa á rörið svo ég hefði einhver flöt til að geta sett gengjur á og notað nemann sem ég er með. Hann var hinsvegar aðeins of langur og þurfti ég að stytta hann í kvöld.
Notaði svo dremelinn til að taka um 3-4mm af honum. Þetta var akkúrat nóg til að ég get látið sjóða hann á og svo haft nógu mikið pláss til að skrúfa þetta uppí blokkina.
Siggi ætlar svo að sjóða þetta fyrir mig á morgun

og svo set ég þetta á og vona að draslið leki ekki hehehe... ætla setja smá threadlocker á þetta til vonar og vara.
Svo mátaði ég mæla og verð að setja að þetta lítur þrælvel út
Svo er bara að vona að BogL drullist til að týna til pöntunina mína úr sendingunni sem þeir fengu frá BMW á fimmtudag/föstudag í síðustu viku svo ég geti komið bílnum útúr plássinu hans Árna! ... ömurlegt að fá lánað stæði í aðstöðu og svo stoppar allt og tefst um 2 vikur útaf einhverju svona veseni.