hliðarrúðurnar afturí komnar úr eftir ruglað maus, voru kíttaðar í dam,, tróð vír á milli og sargaði kíttið í sundur allann hringinn þangað til hver rúða losnaði,
ætli maður þurfi ekki að festa þessar öftustu rúður aftur með kítti????? virðist vera gert svona OEM....
Framrúðan komin úr ásamt listum, þar undir leyndust tvö göt sem verður soðið í á næstu dögum.
Svo er ÖLL innrétting komin úr ásamt topplúgu og allar skrúfur festar við hlutina með límbandi og raðað uppí hillu svo það gangi vetur að raða saman
og toppurinn í loftinu er kominn úr, ætla að fara klára klæða hann svartann...
í gær lagaði ég framsætin (e30 sport svartleður með hliðarsaumum) reif annað sætið í tættlur og skipti um gaurinn sem rennist fram og aftur á setunni,, það var allt brotið í klessu, (tók það úr öðru sæti) og reif aðeins hliðina í sundur til að hægt sé að sjóða smá brot, allt tipp topp núna

þarf bara að bera hreinsi, lit og næringu á þau og þá eru þau 100% fyrir mér
semsagt öll innrétting er klár og uppí hreinum hillum,,, með smellum og öðru svo ekkert tapist.
allt shadowline og listar komið af,, náði öllum slíkum listum af ó beygluðum og brotnum

mega sáttur með það,, gekk vel frá þeim uppi hillu svo þeir verði ekki fyrir skemmdum!!
næst á dagskrá er að byrja tæta allt framanaf bílnum ( Bretti, húdd, svuntu og það dótarí,,) taka svo intercooler og vatnskassa úr og plasta mótorinn alveg hringinn þarsem ég ætla ekki að taka hann úr,,,, og svo eru það smá ryðbætur og suður,,, það sem þarf að ryðbæta eru tvö göt undir framrúðu, eitt smá gat í skottinu, og eitt lítið frammí húddi,,,, svo tætti ég loftnetið af toppnum og ætla að láta loka því gati með suðu,, og einnig deleta rúðupiss gaurunum af húddinu... félagi minn í aðstöðunni er (suðuvinnu snilli hann sér um þessi verk)
svo er bara að byrja að pússa og sparsla örlítið og gera og græja fyrir grunn!!!
svo um leið og búið er að mála og glæra yfir grunninn er að taka gler úr hurðum og mála þær ásamt húddi og brettum og lúgu, byrja svo að raða saman!!!
verður samt ekki málaður alveg strax sökum peninga skort í örlítinn tíma, þarf að klára borga smá first niður en málunin mun byrja og klárast eftir ca 3 mán
og þá byrjar maður að raða saman, hvort sem er nóg af öðru dútli í bílnum einsog undirvagn og svona sem ég ætla að tektíla uppá nýtt,, og mála felgurnar uppá nýtt einnig ásamt fullt af smá dútli einsog að klára toppinn i bílnum...
NÓG AÐ GERA OG GRÆJA
félagi minn tók svolítið af myndum, reyni að muna að pósta þeim hingað,,,, þetta verður hörku uppgerð á boddý sem ég ætla mér að klára rétt fyrir sumarið 2010
E30 FTW!Kv, Mazi!