Það kom í ljós að subframe/diff carrier hafði rifnað, og líklega verið rifin á suðu í einhvern tíma, kanski þess vegna sem langi boltinn var alltaf að slitna.
Ég byrjaði á því að rétta þetta til og sjóða en ákvað á endanum að splæsa í annan nýuppgerðan og polyhúðaðan

Svo vatt þetta aðeins upp á sig eins og oft vill verða.
Ég endaði á því að rífa allt undan, skipta um allar fóðringar og legur, kaupa nýjar Powerflex í subframe, flestar skrúfur nýjar, nýja neðri control arms, mála allt klabbið og taka handbremsuna alveg í gegn (kapplar, klossar og allt fylgidótið.
Gerði líka upp CV joints í öxlunum.
Auk þess tók ég afturbremsudælurnar alveg niður í metal og grunnaði, málaði og glæraði. Þær fá síðan rebuild kit.
Eftirá að hyggjað hefði verið skemmtilegra að blása allt og polyhúða, en ég ákvað að mála með sterku lakki og glæra svo yfir með 2K. Miðað við hvað þetta dót rispast í ísetningu hefði verið ægilega sorglegt að rispa allt fancy poly dótið.
Nokkrar myndir í næsta pósti
Sent from my iPad using Tapatalk