Það er óþarfi að vera með lögmann i öllum málum

enda full sátt um niðurstöðuna held ég, en ég er samt ósáttur við það hvað þetta hefur dregist SVAKALEGA. Ég t.d. væri löngu búinn að koma þessu af mér þar sem að ég á erfitt með að "skulda" einhverjum eitthvað og hvílist varla ef ég á eftir að gera eitthvað fyrir einhvern sem ég hef lofað að gera. Hef reyndar ekki verið í þessari aðstöðu sem Gunni er núna, en þess heldur..
Persónulega finnst mér (og reyndar finnst helvíti mörgum það líka) að þetta ætti að vera löngu tilbúið.
Ég veit að Gunni les þetta og vonandi ýtir þetta við honum. Ég er fullkomlega meðvitaður um að það hefur verið hitt og þetta sem hann hefur þurft að gera, skóli, vinna, ferðalög, flutningur, ritgerð o.s.frv. en ef þetta hefði verið gert skipulega hefði verið hægt að klára þetta á max 4 helgum, frá byrjun til enda. Það eru 25+ helgar síðan a mótorinn fór, það má því lauslega áætla miðað við það sem að framan er sagt að það hefði verið hægt að gera þetta 6 sinnum
