saemi wrote:
Þetta er svolítið sérstakt mál að því leyti að hér er um að ræða:
-Aðila sem eru mjög þekktir af spjallverjum og ekki þekktir fyrir annað en að koma til dyranna eins og þeir eru klæddir
-Umtalsverða fjármuni sem tapast hafa, ekki bara tilfinningamál.
-Vel þekkt umræðuefni, hálfgert gæludýr hér á kraftinum.
Nú hef ég skrifað hér að menn ættu að stíga varlega til jarðar hér í skrifum varðandi þetta mál. Síðan þá hefur ennþá meiri hiti færst í skrifin hér og sífellt bætist í. Mín persónulega skoðun er sú að það sé val þeirra aðila sem eiga í þessum skrifum, hvort þeir ræði þetta hér opinberlega. Fyrir okkur hina sem eigum ekki beinan hlut að máli (allir aðrir en Sveinn og Gunnar) þá finnst mér að við getum ekki verið að dæma né deila á hvað þeir eru að skrifa, á meðan þeirra innlegg eru innan marka þess sem telst málefnalegar umræður.
Það að hinn og þessi séu að segja að ekki eigi að segja hitt og þetta, láta í ljós skoðun sína, að nóg sé komið, þetta eigi ekki við osfrvs., er það ekki þeirra sem eiga beina aðild að málinu að ákveða hvenær segja skuli stopp?
Kannski er þetta mál sem viðkomandi finnst að eigi heima á opinberum vettvangi. Stundum er verra að halda hlutunum í myrkrinu og láta kjaftasögurnar grassera. Með þessu móti höfum við allavega söguna ferska frá fyrstu hendi.
Það fer bara pínku í taugarnar á mér þegar aðrir eru að hafa vit fyrir þeim sem eru fyllilega færir um að taka ábyrgð á sínum gjörðum sjálfir. Langaði þessvegna að skella þessu innleggi inn, ásamt því að minna menn á að vera málefnalegir og vera ekki að búa til jarðveg fyrir leiðindi með skrifum sem koma þessu máli ekki beint við.
Algerlega sammála Sæmi. Bæði Svenni og Gunni eru búnir að taka skýrt fram að þeir vilji að
allt komi fram og ekkert sé falið.
Bið menn að halda sig á mottunni með allt skítkast og leiðindi þannig að hægt sé að eiga hér
umræður um málefnið og læra af því - það er mystery eins og er hvernig mótorinn fór þannig að
það er of snemmt að dæma.
_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...