Hann er mjög vel með farinn að innan, en það er tvennt að þar, stýrið sem ég hef nefnt áður og hinsvegar hefur hluti af innréttingunni (harðplastið) verið sprautað svart í glans, þannig að ég er tilneyddur að reyna að finna það á partasölu og skipta því út og reikna kannski með að dunda mér við það í sumar ef ég á einhvern pening.
Það furðulega er að hann virðist höndla þessa lækkun án vandræða, þá ég ég við að það eru engin vandkvæði á því að hafa hann svona, rekst hvergi í, beygjuradíus er óbreyttur sýnist mér en hann er auðvitað hastari en ég veit ekki hvað, svínliggur auðvitað fyrir vikið.
Þessvegna er nú spurningin sú hvort að maður muni ekki þarnæsta sumar hækka hann örlítið 60/40 og sleppa spacerunum.
M-Tech II er auðvitað málið, en svo miklu dýrara en M-Tech I sem mér finnst líka flott. Held samt að mig langi mest í Alpina eða AC Schnitzer stýri á hann
Ég sé til hvað finnst á ebay... ég ætla mér allavega að nota þá stöðu sem ég er í, kaupa eitt og annað sem ég sé forvitnilegt.
Peningalega séð get ég samt ekkert gert fyrr en í haust... en jafnvel þá má vel vera að önnur mikilvæg áform þýði frestun þangað til næsta sumar. En stýrið mun fara, það er ekki hægt að keyra bílinn án þess að sjá eitthvað á mælana!!!