Verð að draga í land með þetta púst mod, fanst það reyndar svolítið hávaðasamt. Fékk endurskoðun, hávaðinn mældist rúm 83 db c.a 1.5 m frá bílnum í lausagangi og 118 í c.a 90% gjöf. Á kút sem ég ætla að láta snikka við en hvert á ég að fara til að fá fljóta og góða þjónustu.
þegar ég lét skipta um endakút á m tech í vor hringdi ég á bjb og þeir sögðu mér bara að kíkja strax og þeir redduðu þessu á meðan ég beið. Kannski bara hist svona vel á að það var lítið bókað
Takk fyrir það Ingvar, þetta er heill kútur og átti að sounda vel en var allt og hávær. Bíllinn er á góðri leið með að vera flottur, veit ekki hvort þú varst búin að sjá myndir að innan en þar er hann alls ekki síðri með M3 innréttingu 2x2 ljósgrátt leður sem tónar sérstaklega vel við litinn á bílnum og M tech II stýri og fl.
Endurskoðun út á hávaða, frá 4cyl vél
Var þetta gulli græni á akranesi, eða hvað sem hann heitir kallinn sem er svona svakalega bitur þarna hjá frumherja?