Komu pakkar á föstudaginn frá Bavarian Soundwerks
Þetta er semsagt hátalaraupgrade ásamt boomboom boxi + magnara.
Byrjaði aðeins í dag að installera þessu.
Leiðbeiningarnar frá BSW eru mjög góðar þannig að þetta gekk fínt -
kláraði eina hurð og hinar verða fljótlegri.
Hér sést til vinstri það sem tekið var úr og hægra megin það sem sett
var í:
Maður heyrir alveg mun þegar maður situr í bílnum með upgradeið
öðru megin og stock á móti. Miklu meira "crispy" sound.
Það verður lítið mál að klára hurðirnar en meira vesen að setja
magnarann og bassaboxið í. Hér er mynd frá BSW sem sýnir hvernig
bassaboxið er fest:
Mjög lítið mál að kippa því út ef maður þarf að nota plássið.