Byrjaði á að skipta um heddpakkningu í vor og skipti í leiðinni um allar fóðringar í skiptistönginni ásamt því að setja risastórarann ál vatnskassa í bíllinn. Svo mætti gunni á klakann og settum við þá walbro dælu í kaggann og wasted spark kerfi. Þegar bíllinn var farinn að ganga eftir smá bras við þetta var svo skrúfað almennilega uppí boostinu eða um 1.5bar og keyrir druslan á max nýtingu á spíssum núna. Verð að segja að powerið er alveg klikkað
Búinn að mæta á nokkrar æfingar uppá rallykross braut og skemmt mér þokkalega en því miður ekki eins oft og ég hefði viljað. Stefnan er að reyna keppa í driftinu næsta sumar og/eða á kvartmílunni en allt óvíst með þetta því ég á von á nýjum erfingja fljótlega eftir áramót sem heimtar tíma og annað af manni.
Annars búið að vera frábært sumar fyrir mig og ekki leiðinlegt að eyða því með kraftinum
Og er svo ekki skylda að koma með vetrarmodd listann?
taka af númerum eftir dyno dag
Skella e36 steering rackinu í
Koma olíuhita og pressu mælunum í gang
bögga gunna þangað til lcd displayið verður virkt
Geggjað að vera eiginlega ekki með neinn lista til að vera gera og græja



