Búinn að vera veikur frekar lengi, hef ekki haft næga orku til að vera duglegur í þessum.

Er þó að verða búinn að ryðbæta, sem betur fer!
Nokkrar ómerkilegar og leiðinlegar myndir af styrkingunum, sem eru komnar undir, soðnar, grunnað yfir og lakkað.




Svo pússaði ég upp allt subframe'ið, fór 3 umferðir með Rust converter (helvíti sniðugt efni, breytir ryðinu í svarta málmkennda drullu og stoppar ryðmyndun) grunnaði nokkrar umferðir og sprautaði svo með ryðverjandi lakki.

Ætla að nota gömlu fóðringarnar fram á sumar, þá á ég pening fyrir nýjum.
Poly vs. oem? spurning...
Pabbi er búinn að vera duglegur að dunda sér í bílnum af og til á meðan ég var veikur, búinn að sjóða festingu fyrir bremsurörið og bletta í ryð undir botninum með rust converter og grunni.
Stefnum á að vera búnir að ryðbæta næstu helgi, ætti þá að geta farið í skoðun í næstu viku!
