Í vikunni tók ég nýja bensíntankinn og varði hann allann með tektíl svo hann lifi aðeins lengur

Tók einnig allar hlífarnar af gamla tankinum (hlífar og upphengjubracket), pússaði það niður, varði með Zinc 182 og á svo eftir að mála þær svo svartar.
Ég skrúfaði in-tank bensíndæluna af gamla bensíntanknum sem var í......og komst þá
að því að ég get ekki notað þá dælu á nýja tankinn
USA útgáfan af bensíntanknum er 63L vs evróputankinn sem er 70L
Ég keypti nýja tankinn sem EURO tank, til þess að mælaborðið sem er í honum núna
eftir USA->EURO rafkerfisbreytinguna, gæti fengið rétt skilaboð frá Fuel Sendernum.
En blessaðir ameríkanarnir þurfa endilega að hafa ÖÐRUVÍSI in-tank dælu,,,,hún er semsagt skrúfuð á tankinn með 6 skrúfum, vs evróputankinn sem er með twist in dælu (þeas snýrð henni ofan í tankinn).
Þetta þýðir að ég þarf að kaupa mér nýja dælu sem kostar ódýrast $228
Bömmer

Commentið frá Sv.H......"Gullna hýtin",,,,,er hverju orði sannara
Eini ljósi punkturinn í þessu öllu saman....er að ég mun þá verða kominn með:
Nýjan bensíntank
Nýja in-tank bensíndælu
Nýja utanáliggjandi bensíndælu
Nýja bensínsíu
Hann ætti amk ekki að skorta bensín næstu árin
