Joined: Sun 07. Dec 2003 17:36 Posts: 4044 Location: undir bíl eða ofaná kellingu..
Jæjja góðir hálsar.
Loksins loksins.
Ég er búinn að vera í svolitlu basli með að fá m20 gírkassa og flywheel til að passa á M50b25 vélina. ég var með M20-m50-m10-s14 flywheel ---- m20-m50-m40 gírkassa. Til að prófa þetta allt var ég með M50b25 mótor sem ég prófaði þetta allt á. Það fóru nokkuð margir tímar í þetta og nokkur símtöl.
Ég keypti M50b25 UUC stage 2 ceramic kúplingu, svo þegar ég fæ hana þá passar hún bara á m50 twin mass flywheel sem er útí hött í svona turbo pælingum, það brotnar í venjulegum 325i. Ég ákvað að notast þá við m20 hjól en það þarf að vinna það til að fá þessa dýru.!! kýplingu til að passa. (gott að þekkja góðan rennismið)
M20 gírkassi er talin vera sterkasti kassinn sem hægt er að nota. En hann passar ekki beint á heldur hallar hann aðeins til hægri ef horft er aftaná þetta. einungis 4 boltar passa í gegn, en eru það allt stóru botlarnir sem komast í gegn. Hinir 4 eru bara fyrir pönnuna, þannig ég hugsa að það sé ekkert svo mikið atriði.
Búið er að renna 2.5mm af m20 flywheelinu á bakhliðini, það rakst í pönnuna áður. M20 gírkassi og fann ég startara sem passar við þetta. Kemur hann úr M20 e34 sjálfskiptum. (Áður var ég búinn að færa bendex úr stórum beintenntum m20 startara hlúnk í m50 startara.) Það gekk ekki þar sem færslan á bendexinum var ekki nógu mikil. (rakst í startkransinn).
Hér kemur smá video af þessu. (með smá húmor fyrir BMW-limi)
VIDEO
góðar stundir.
_________________ Aron Jarl Hillerz 1987 BMW e30 M-tech I Turbo (400+hp / 600+nm) 1990 Civic EF B18C6 (190hp) 1997 Subaru Legacy (winter) 1973 Malaguti Bolognia 49cc (2hp) Go-Kart Rotax 125cc
Users browsing this forum: No registered users and 12 guests
You cannot post new topics in this forum You cannot reply to topics in this forum You cannot edit your posts in this forum You cannot delete your posts in this forum