En já... kannski að ég segi frá því hvað málið var
1 ónýt stimpilstöng, ónýtar stangarlegur og það þarf að renna sveifarásinn
Á einum stimplinum þá voru semsagt báðar legurnar komnar sömu megin... eiginlega inn í hvor aðra!!
Ég er ekkert voðalega klár á svona vélardæmi þannig að ég veit ekki hvernig í fjandanum svona getur gerst... dettur ykkur eitthvað í hug??
Og gírkassinn minn var brotinn og við fundum ekki út af hverju það var olía að leka.
Ég er ekki beint heppnasti gaur í heimi
En eins og ég hef sagt áður þá þýðir ekkert að fara í fílu.. bara laga.
Þó svo að ég hafi verið frekar fúll í gær... og farinn að skoða "Til sölu bílar" og athugað hvort það væri ekki eitthvað skemmtilegt til sölu
