E36 3**i '91 SK-050

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

E36 3**i '91 SK-050

Postby rockstone » Mon 11. Nov 2013 17:54

Back to basics! Kominn á e36 aftur, 320i, helling sem þarf að ditta að en hann verður bara flottur.

Sótti eiddz um klukkan 8:30 á laugardagsmorgun, brunuðum uppá aðstöðu og náðum í verkfæri og tjakk til öryggis,
fékk lánuð vetrardekk hjá eið og lögðum svo af stað um 9 leitið, en áfangastaður var Akureyri City.
Fyrsta hálka var í Borgarnesi, en eftir það var voða lítið á veginum, aðallega bara helling af snjór fyrir utan veginn,
sól og heiðskýrt, fínast ferðaveður. Þangað til komið var að Öxnadalsheiði, þar var flughálka og hafði bíl verið velt útaf þar kvöldið
áður.
Við fórum af sjálfsögðu varlega og komum til Akureyrar nákvæmlega klukkan 13:37. Fundum bílinn sem ætlunin var að versla, SK-050
sem við þekkjum aðeins þar sem félagi okkar átti þennan bíl í kringum 2008-09, en þá var hann dökkgrár og pretty much orginal 320i.
Hann er allt öðruvísi í dag, hann varð sprautaður rauður á einhverjum tímapunkti og lækkaður á hvítar breiðar felgur, swappað önnur vél M50B25,
kassi ZF, leðursæti og fl, hann var mjög flottur á tímabili en hefur svo bara versnað. Mér er boðinn þessi bíll og ég ákveð
að slá til.
Eftir að kaupa bílinn og henda vetrardekkjunum undir sem eiddz lánaði mér þar sem ég fékk hann felgulausann, var farið að fá sér að
borða, Greifinn varð fyrir valinu og var góð Pizza étin.
Svo var lagt í hann, stoppuðum fyrst á bensínstöð til að hafa eldsneyti alla leiðina. Fyrsta bil var soldið fljótt að fara af
eldsneytismælinum og gruna ég leka, þar sem bensínlykt var fyrir utan hann h/m. Við héldum samt áfram og fór eldsneytistankurinn
eðlilega niður eftir það, greinilega má ekki setja meira en 45L á hann, þarf að kíkja á þetta.
Eins og ég sagði ofar var veðrið fínt frá rvk til ak, en veðrið á heimleiðinni var vægast sagt snúið við, það var hálka/snjór allstaðar,
snjókoma, vindur, flughált allveg að borgarnesi. Og þurfti mikla athygli og færni til að komast yfir þetta. Sérstaklega á bíl með camber
stillinguna í rugli þar sem hann er alveg lækkaður í neðstu stöðu, og var hann að dansa soldið oft.
Eftir borganes var leiðin greið og komum við í bæinn um 22 leitið, klukkutíma lengur á leiðinni heim en til ak.
Þetta var skemmtileg ferð, og kominn með bíl sem ég get græjað í driftið.
Soldið þreyttur eftir 10 tíma akstur á einum degi!

Vin: WBACB11020FC11614
BMW E36 320i
Litur: Diamantschwarz Metallic (181)
Framleiðsludagur: 1991-04-11

Aukabúnaður frá verksmiðkju:
S400A
SCHIEBE-HEBEDACH, MECHANISCH
Slide/tilt sunroof, manual
S428A
WARNDREIECK
Warning triangle and first aid kit
S510A
LEUCHTWEITENREGELUNG ABBLENDLICHT
Headlight aim control
S520A
NEBELSCHEINWERFER
Fog lights
S652A
BMW BAVARIA C II
Radio Bavaria C II
S680A
RADIOANTENNE MANUELL
Radio antenna, manual
S690A
CASSETTENHALTERUNG
Cassette holder
S704A
M SPORTFAHRWERK
M Sports suspension
L801A
DEUTSCHLAND-AUSFUEHRUNG
National version Germany/Austria


Í dag er hann rauður að lit, Mazda Burning Red.
Í húddinu er M50B25 Non-Vanos og aftaná henni ZF 5gíra kassi.
Hann er með læst 188mm drif með hlutfallinu 3.07 og kemur úr 328i.
Hann er ekinn 319þ á boddí en vél og kassi um ~260þ.
Raceland coilover.
Svart leður sem þarf áburðar.
Búið er að endurklæða armpúðan með svörtu leðri, en það var látið gert þegar félaga okkar eiddz átti hann.
M-tech þriggja arma nonairbag stýri, sem búið er að rífa allt leðrið af.
Króm m gírhnúi sem er ónýtur.
Mtech framstuðari sem er allur í hnjaski.
Rieger efri spoiler
Lip spoiler á skotti.
JimC tölvukubbur. Hækkað revlimit ásamt smá auka afli.
Bæði afturbrettakanntar beyglaðir smá inn eftir samræði við hvítar felgur sem eru of breiðar og á of litlum dekkjum.
Annað frambretti beyglað.
Festing hurðastoppara fyrir bílstjórahurð ónýt ásamt hurðastoppara.
Brotinn fremri drifbolti (virðist vera vinsælt þessa dagana)
Ónýt drifupphengufóðring.
Aftermarket "kraftsía" sem er ónýt, vantar orginal loftsíubox.
einhverjir rúðuupphalarar virka ekki, búið að taka handföngin af allavega svo þær séu ekki opnaðar, eftir að skoða.
Örugglega einhvað fleira.

Vorum með GoPro á leiðinni, kemur video líklega seinna.

Myndir þegar við komum að honum:
Image
Image
Image
Image

Búnar að ganga frá viðskiptum og vetrardekkin komin undir:
Image

Svo var borðað:
Image

Komnir í Borgarnes eftir þetta glataða veður!
Image

Á vigtinni, sirka hálfann tank.
Image
Image
Image


Og svo gamlar myndir sem ég fann á netinu og fékk frá félaga mínum.
http://www.flickr.com/photos/101069963@ ... 560740394/

Meira seinna ;)
Last edited by rockstone on Mon 28. Apr 2014 22:51, edited 16 times in total.
User avatar
rockstone
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5217
Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Location: HérogÞarogAllstaðar

Re: E36 320i '91 SK-050 - Byrjunin

Postby Joibs » Mon 11. Nov 2013 18:24

til hamingju með þennan :thup:
en hvernig er þakið á honum? erþað ekki allt útí dældum og beiglum eftir að hann var með númerið ADHD? :lol:
fann ekki myndina þar sem sá eigandi stendur á topnum á honum á meðan bíllinn er í lausagangi í öðrum gír :roll:
afsakið allar stafsetningar villur (er lesblindur)
Image
BMW e36 325is "dundið" (seldur)
BMW e36 318is "daily"
BMW e32 730ia "sá fyrsti" (seldur :( )
User avatar
Joibs
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1204
Joined: Sat 11. Jul 2009 16:34

Re: E36 320i '91 SK-050 - Byrjunin

Postby rockstone » Mon 11. Nov 2013 18:27

Joibs wrote:til hamingju með þennan :thup:
en hvernig er þakið á honum? erþað ekki allt útí dældum og beiglum eftir að hann var með númerið ADHD? :lol:
fann ekki myndina þar sem sá eigandi stendur á topnum á honum á meðan bíllinn er í lausagangi í öðrum gír :roll:


https://fbcdn-sphotos-h-a.akamaihd.net/ ... 2994_n.jpg
User avatar
rockstone
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5217
Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Location: HérogÞarogAllstaðar

Re: E36 320i '91 SK-050 - Byrjunin

Postby Yellow » Mon 11. Nov 2013 18:34

Til lukku :)


´
Væri ekkert á móti svona veðri hérna fyrir sunnan eins og sést á þessum myndum.
1997 BMW E39 523iA [NS-013]
User avatar
Yellow
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1209
Joined: Mon 02. Jan 2012 19:48
Location: 203, Kópavogur

Re: E36 320i '91 SK-050 - Byrjunin

Postby thorsteinarg » Mon 11. Nov 2013 19:17

Flottur :D
Ætlaru að selja hvitu felgurnar ?
E36 COUPÉ 325 93' M50B25
User avatar
thorsteinarg
Getawaybílstjóri
 
Posts: 646
Joined: Sun 20. Jan 2013 23:06
Location: HFJ

Re: E36 320i '91 SK-050 - Byrjunin

Postby bjarkibje » Mon 11. Nov 2013 19:22

held hann hafi ekki fengið þær með
BMW E46 330d [SS-011]
User avatar
bjarkibje
Getawaybílstjóri
 
Posts: 740
Joined: Tue 11. Aug 2009 10:37

Re: E36 320i '91 SK-050 - Byrjunin

Postby rockstone » Mon 11. Nov 2013 19:25

thorsteinarg wrote:Flottur :D
Ætlaru að selja hvitu felgurnar ?


bjarkibje wrote:held hann hafi ekki fengið þær með


Eins og ég sagði í textanum þá fékk ég hann felgulausann.
User avatar
rockstone
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5217
Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Location: HérogÞarogAllstaðar

Re: E36 320i '91 SK-050 - Byrjunin

Postby Omar_ingi » Mon 11. Nov 2013 19:46

Til hamingju með gripinn :thup:
Ómar Ingi
Sími: 846-1534

Bílarnir mínir:
BMW E34 M5 3.8
BMW E30 325 90' "S50B32"
BMW E30 Cabrio 89' M20B25 Turbo
BMW E36 316 M-Tech
BMW E36 M3
Omar_ingi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 731
Joined: Mon 17. Aug 2009 13:09

Re: E36 320i '91 SK-050 - Byrjunin

Postby rockstone » Mon 11. Nov 2013 23:07

Ýmislegt sem er þegar komið í mínar hendur og fer í seinna.

MOMO Hub
Image
Sparco Quick Release
Image
Godsnow stýri
Image
D1 Oil Catch Can
Image
Hydrolic handbrake
Image
User avatar
rockstone
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5217
Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Location: HérogÞarogAllstaðar

Re: E36 320i '91 SK-050 - Byrjunin

Postby srr » Mon 11. Nov 2013 23:16

Hvaða mótor ertu að spá í að setja ofan í ?
Skúli R
E24 628Csi '81 | E28 535i '87 | E28 533i '82 | E23 735i '84 | E32 740 | E36 320i x 2 | E46 330i Tour | E46 330d Tour
Partaðir: E28 3x518, 2x520 & 525 # E30 325ix # E32 2x730, 2x735 & 4x750 # E34 520, 3x525, 2x525ix, 2x540T # E36 6x316, 3x318, 318is, 6x320, 1x323 # E38 728, 735 & 740 # E39 2x523, 530d, 540 # E46 316 & 3x318, 320d
User avatar
srr
Formúlubílstjóri
 
Posts: 10993
Joined: Sat 10. Jan 2004 15:22
Location: Keflavík, BMW hverfinu

Re: E36 320i '91 SK-050 - Byrjunin

Postby rockstone » Mon 11. Nov 2013 23:17

srr wrote:Hvaða mótor ertu að spá í að setja ofan í ?


:alien: er ekki skemmtilegra að það komi í ljós þegar það gerist.
User avatar
rockstone
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5217
Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Location: HérogÞarogAllstaðar

Re: E36 320i '91 SK-050 - Byrjunin

Postby Yellow » Mon 11. Nov 2013 23:31

rockstone wrote:
srr wrote:Hvaða mótor ertu að spá í að setja ofan í ?


:alien: er ekki skemmtilegra að það komi í ljós þegar það gerist.


S50 hjá Þórði :alien:
1997 BMW E39 523iA [NS-013]
User avatar
Yellow
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1209
Joined: Mon 02. Jan 2012 19:48
Location: 203, Kópavogur

Re: E36 320i '91 SK-050 - Byrjunin

Postby Raggi M5 » Tue 12. Nov 2013 11:27

This should be interesting ! Verður gaman að sjá útkomuna á þessum, sá hann einmitt á Sigló í sumar.

Image
E39 525d Touring ´03
Toy Yaris T-Sport ´02
Yamaha R1 ´05


Alpina wrote:M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......
User avatar
Raggi M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3236
Joined: Wed 04. Sep 2002 22:02
Location: Njarðvíkingur!

Re: E36 320i '91 SK-050 - Byrjunin

Postby gylfithor » Thu 14. Nov 2013 16:06

verður gaman að sjá þetta reddý :)
bmw e39 540 '98
bmw e36 318 '96
benz c280 '96
bmw e36 316i '96 compact rifinn
skoda octavia vrs turbo '02 seldur
bmw e36 325is '93 seldur
bmw e36 316i '92 seldur
bmw e36 318i '93 seldur
bmw e36 318i '96 seldur
bmw e36 318is coupe '95 seldur
og fullt af druslum seldar
gylfithor
Getawaybílstjóri
 
Posts: 671
Joined: Mon 08. Mar 2010 14:14

Re: E36 320i '91 SK-050 - Byrjunin

Postby rockstone » Fri 15. Nov 2013 10:50

Smá video sem eiddz tók upp og editaði af ferðinni til ak og til baka, getið horft á það hér ef þið hafið áhuga ;)

User avatar
rockstone
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5217
Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Location: HérogÞarogAllstaðar

Next

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 78 guests