BMW e46 330i M-tech

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

BMW e46 330i M-tech

Postby tolliii » Fri 21. Jun 2013 01:06

Sælir, ákvað loksins að fá mér BMW.
Fyrir valinu varð e46 330 M-tech bíll


Ég er að austan og lagði af stað suður þriðjudaginn 11 Júni, var kominn í Þorlákshöfn um miðnætti.
Ég vaknaði eld snemma og var kominn á bílasölurnar klukkan 9:00 að leita mér af BMW, var búinn að finna nokkra sem mér leist ágætlega á.
Byrjaði að fara að skoða 325 bíl sem mér leist ekkert á en í leiðinni sá ég einn m5 e39 ALVEG svartan með svörtum felgum,
það var sett á hann 1200þús og mig klæjaði í puttana að prufu keyra hann,
fékk það ekki og mennirnir á sölunni voru þvílíkir dónar að mig langaði ekkert að stunda viðskipti við þá.
Skoðaði bílinn reyndar betur eftir að ég keypti þennan og þetta lookar algjör búðingur þótt að ég viti ekkert um það.
Fórum á aðrar bílasölur og ættlðum að skoða annan e46 325, reyndar var þessi með leðri og minna ekinn en hann var seldur.
Ég sagði bílasalanum hvað ég væri með mikinn pening og spurði hann hvað hann gæti gert fyrir mig, hann var ekkert nema almennilegheitin
og kallaði inn e65 745, ég var hand viss um að ég væri búinn að finna bílinn...
settist upp í hann og þvílíkur lúxus, tók smá hring og áttaði mig fljótlega á því að þetta var of stór pakki fyrir mig, en mikið rosalega var gaman að keyra þetta!
Klukkan var að ganga 5 og var búinn að vera tæpa 7 tíma á sölum að leita - Alveg búinn á því haha
Var búinn að hringja á bílasöluna á Selfossi einmitt útaf þessum og hann sagði okkur að bíllinn væri á verkstæði í Hafnafirði,
þar sem var verið að skipta um spindil, en kom okkur í samband við eigandan sem kom og sótti bílinn og leifði mér að prófa.
Strax eftir fyrstu inngjöf var ég búinn að ákveða að þetta væri bílinn sem mig langaði í, gerði honum tilboð og gengum frá viðskiptunum daginn eftir þegar hann var klár af verkstæðinu.

Bílinn sem um ræðir er BMW e46 330 orginal M-tech

Image
Léleg Iphone mynd tekinn á leiðinni austur.

Hann er á 17'' felgum, skráður 235 hö, allur leðraður.
M-tech pakkinn felur í sér: fjöðrun, lægri og stífari, sport stólar, feitara stýri, stuðara og sílsa, svartan topp, harman kardon hjóðkerfi og M merki inn í sílsum og útum allt.
6 Diska magasin í skotti.
Það er algjör draumur að keyra þetta og hann lítur út nánast eins og nýr þrátt fyrir að vera 2002 model.
Hann er keyrður 147.þús km.
Fyrrverandi eigandi hugsaði mjög vel um hann, var geymdur inni á veturna og það fer ekki á milli mála að hann var reglulega bónaður því lakkið
er mjög gott fyrir utan smá grjót kast að framan.
Hann er alveg eins og nýr að innan, það er ekki að sjá á innréttingunni.
Ég ér ekkert nema ógeðslega sáttur með þessi kaup og ættla að halda áfram að dekra við hann.

Mig grunar sammt að það sé kominn tími á loftflæðiskinjara/súrefnisskinjara því hann er svoldið lengi að taka við sér, það kveiknaði líka á check engine
ljósinu um daginn en það slökknaði og er ekki búið að koma aftur, en mig grunar að hann verði sprækari við þetta, ættla að tækla þetta eins fjótlega og ég get.

Það eru nokkur plön sem eru á lista fyrir utan gott við hald!
Eins og filmur, 330i merki á skottið, sverta nýrun (shadowline), lip á skottið og fleira..
en ættla ekkert að byrja á þeim fyrr en i september því ég er að fara út í sumar og ættla að njóta þess að eiga pening þar :D

Fæðingarvottorð

Vehicle information

Type code AV51

Type 330I (EUR)

Dev. series E46 (4)

Line 3

Body type LIM

Steering LL

Door count 4

Engine M54

Cubical capacity 3.00

Power 170

Transmision HECK

Gearbox AUT

Colour BLACK SAPPHIRE METALLIC (475)

Upholstery STANDARDLEDER/SCHWARZ (N6SW)

Prod. date 2001-07-20


Order options:

169 EU3 EXHAUST EMISSIONS NORM

205 AUTOMATIC TRANSMISSION

210 DYNAMIC STABILITY CONTROL (DSC)

249 MULTI-FUNCTION FOR STEERING WHEEL

320 MODEL DESIGNATION, DELETION

326 REAR SPOILER, DELETION

338 M SPORTS PACKAGE II

423 FLOOR MATS, VELOUR

441 SMOKERS PACKAGE

465 THROUGH-LOAD SYSTEM

474 ARMREST FRONT, DELETION

481 SPORT SEATS F DRIVER/FRONT PASSENGER

494 SEAT HEATING F DRIVER/FRONT PASSENGER

534 AUTOMATIC AIR CONDITIONING

662 RADIO BMW BUSINESS CD

672 CD CHANGER BMW FOR 6 CDS

674 HIFI LOUDSPEAKER SYSTEM HARMAN KARDON

710 M LEATHER STEERING WHEEL

716 M AERODYNAMICS PACKAGE II

760 INDIVIDUAL HIGH-GLOSS SATIN CHROME

772 INTERIOR TRIM ALU BLACK CUBE

775 INDIVIDUAL ROOF-LINING ANTHRACITE

785 WHITE DIRECTION INDICATOR LIGHTS

788 M LT/ALY WHEELS

863 EUROPE/DEALER DIRECTORY

879 GERMAN/OWNERS HANDBOOK/SERVICE BOOKLET

915 BODY SKIN CONSERVATION, DELETION


Series options

411 WINDOW LIFTS, ELECTRIC

520 FOGLIGHTS

548 SPEEDOMETER WITH KILOMETER READING

550 ON-BOARD COMPUTER

832 BATTERY IN LUGGAGE COMPARTMENT

851 LANGUAGE VERSION GERMAN


Myndi elska að fá álit og ættla að koma með betri myndir um helgina þegar eg er búinn að þrífa og bóna :arrow:
Last edited by tolliii on Sun 26. Jan 2014 16:16, edited 10 times in total.
Þorleifur Kristmundsson.
Sími: 8666558

Subaru Legacy 02'

Image

Hjartað slær bmw
User avatar
tolliii
Getawaybílstjóri
 
Posts: 681
Joined: Sat 04. Jul 2009 19:08

Re: BMW e46 330 M-tech

Postby íbbi_ » Fri 21. Jun 2013 02:29

flottur þessi.

mér finnst svona mtech E46 afar smekklegir
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: BMW e46 330 M-tech

Postby aronsteinn » Fri 21. Jun 2013 13:10

Virkilega smekklegur bíll hjá þér...
Er hann Bsk eða Ssk??
BMW E46 330d MY04 "STEELGREY"
User avatar
aronsteinn
Kassabílstjóri
 
Posts: 145
Joined: Sun 09. Aug 2009 02:37

Re: BMW e46 330 M-tech

Postby Hreiðar » Fri 21. Jun 2013 15:32

Ótrúlega flottur! Langar í fleiri myndir :D
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10

Re: BMW e46 330 M-tech

Postby tolliii » Fri 21. Jun 2013 23:46

Takk fyrir það strákar, hann er reyndar sjálfskiptur sem ég lít á sem kost í svona bíl því þá er maður ekkert að spóla að óþörfu. (þótt það sé alveg vel hægt)
Þetta virkar alveg ágætlega.. búinn að keyra rúmlega 2200 km síðan ég fékk hann og það er alltaf jafn gaman að gefa honum smá :)
Ættla að reyna að taka myndir á morgun eftir gott bón :thup:
Þorleifur Kristmundsson.
Sími: 8666558

Subaru Legacy 02'

Image

Hjartað slær bmw
User avatar
tolliii
Getawaybílstjóri
 
Posts: 681
Joined: Sat 04. Jul 2009 19:08

Re: BMW e46 330 M-tech

Postby Emil Örn » Sat 22. Jun 2013 10:57

Flottur þessi, líst vel á þessi snyrtilegu plön. Er sammála um að það væri gaman að sjá fleiri myndir af honum.

Til hamingju með hann. :)
User avatar
Emil Örn
Getawaybílstjóri
 
Posts: 866
Joined: Thu 20. Aug 2009 18:10
Location: ... á bakvið myndavélina.

Re: BMW e46 330 M-tech

Postby Kristjan PGT » Sat 22. Jun 2013 19:25

Flottur bíll! Væri mikið til í svona :)

En endilega upplýstu okkur um hvaða bílasala var með dónaskapinn og hvaða bílasala veitti þér góða þjónustu :)
Kristjan PGT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1610
Joined: Sat 03. May 2003 18:34

Re: BMW e46 330 M-tech

Postby ömmudriver » Sun 23. Jun 2013 18:16

Flottur bíll með frábæra vél :thup:

Ég myndi ekki sverta nýrun þar sem að bíllinn er dökkur að lit og shadowline fyrir og já sleppa því að filma hann nema að þú ætlir að setja filmur í framhurðarnar líka.
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka

Re: BMW e46 330 M-tech

Postby tolliii » Wed 26. Jun 2013 00:03

tók einhverjar myndir í kvöld, tek það fram að ég kann ekkert á myndavélar... ég bara ýti á takkann :)

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image
Skrúðurinn í baksýn :)
Last edited by tolliii on Wed 26. Jun 2013 00:15, edited 1 time in total.
Þorleifur Kristmundsson.
Sími: 8666558

Subaru Legacy 02'

Image

Hjartað slær bmw
User avatar
tolliii
Getawaybílstjóri
 
Posts: 681
Joined: Sat 04. Jul 2009 19:08

Re: BMW e46 330 M-tech

Postby Benzari » Wed 26. Jun 2013 00:09

Æji vantar almennilega þoku. :mrgreen:

Geggjað umhverfi og töff bíll.
1990 Benz 250D W124
Benzari
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2674
Joined: Fri 25. Apr 2003 07:11
Location: Reykjavík

Re: BMW e46 330 M-tech

Postby tolliii » Wed 26. Jun 2013 00:12

Kristjan PGT wrote:Flottur bíll! Væri mikið til í svona :)

En endilega upplýstu okkur um hvaða bílasala var með dónaskapinn og hvaða bílasala veitti þér góða þjónustu :)


Takk fyrir það, hann er ágætur þessi :)
en get ekki mælt með þeim í Bílalíf, virkuðu frekar tæpir náungar á mig..
Svo var það bílasali í höfðahöllinni sem var snillingur.
Þorleifur Kristmundsson.
Sími: 8666558

Subaru Legacy 02'

Image

Hjartað slær bmw
User avatar
tolliii
Getawaybílstjóri
 
Posts: 681
Joined: Sat 04. Jul 2009 19:08

Re: BMW e46 330 M-tech

Postby Hreiðar » Wed 26. Jun 2013 11:48

Flottar myndir, innréttingin alveg A+! Æðislegir bílar 8)
User avatar
Hreiðar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2220
Joined: Fri 16. Nov 2007 21:10

Re: BMW e46 330 M-tech

Postby Elnino » Wed 26. Jun 2013 15:14

Fallegur er hann :) vonandi þjónar hann þér jafnvel og hann þjónaði mér sl. 4 ár :wink:
BMW 330 metch 2002
Bmw e-36 323 coupe - 1997 - SELDUR
User avatar
Elnino
Getawaybílstjóri
 
Posts: 798
Joined: Fri 15. Apr 2005 14:18
Location: Þorlákshöfn City!

Re: BMW e46 330 M-tech

Postby IvanAnders » Wed 26. Jun 2013 22:28

Það að hann sé lengi að taka við sér myndi ég giska á að væri rifin inntakshosa, eða cam sensor, láttu bara lesa af honum.

Til hamingju með mega svalan bíl! 8)
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Re: BMW e46 330 M-tech

Postby Emil Örn » Wed 26. Jun 2013 22:34

Alveg hriiikaleega flottur, M-Tech gerir svo mikið fyrir þessa bíla.
User avatar
Emil Örn
Getawaybílstjóri
 
Posts: 866
Joined: Thu 20. Aug 2009 18:10
Location: ... á bakvið myndavélina.

Next

Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider], Google [Bot] and 29 guests