Virkilega fallegt eintak, hefur komist alla sína ævi í gegnum skoðun án athugasemda nema einu sinni og þá var einungis
sett út á stöðuljós. Hann er keyrður í dag 140.000 km sem finnst mér vera vel sloppið á bíl sem kom úr verksmiðjunni
seint árið 1996. Það er hægt að halda áfram endalaust um hvað þessi bíll hefur fengið góða meðferð gegnum árin og
ég ætla svo sannarlega að reyna mitt besta upp á það að halda bílnum þannig !
Maður er sjálfur í skóla sem stendur svo það er nóg að bara reka bílinn á meðan, mun samt án efa reyna að safna í að
gera einhverja flottar breytingar á honum, samt ekkert rosalega mikið. Eina sem að er á dagskrá so far er svartur toppur
og M stuðari so kemur hitt með tímanum.
Set inn bara myndir frá söluauglýsingunni og reyni að fá einhvern til að taka almennilegar myndir af honum sem fyrst.


Kv. Einn VIRKILEGA sáttur






