Er ekki enn búinn að hringja í b&l og fá fæðingarvottorðið en hérna er eitthvað sem mér dettur í hug núna.
Topplúga
Stóra aksturstölvan
Niðurfellanleg aftursæti
Rice loftsía
og eitthvað meira líklegast.
En svo við förum nú í framtíðarplönin þá langar mig að láta fara í gírkassann, senda kvikindið í sprautun þar sem hann er mjög grjótbarinn, hugsanlega setja á hann Angel Eyes og coilovers. Jafnvel M-stöðara o.fl.
En það er alltaf eitthvað að bætast við þennan lista
En ætli ég láti ekki þessar lélegu myndir tala, kem með betri myndir um leið og ég fæ einhvern pró gaur með pró myndavél taka myndir og þegar ég er búinn að fá listann á framstuðarann
Þvílíkur jeppi
Félagi minn segir að þetta sé staðalbúnaður í bimmum og sótti þessa fínu kylfu. Efast þó um að löggan yrði mjög hrifin


