Bíllinn er nokkuð standard, ekki verið að flækja málin með skrauti
Myndir 2012:










Saxi wrote:Jæja búinn að eiga þennan í rúm tvö ár. Hef verið hrikalega latur við að taka myndir en smelli einni í fyrsta póst.
Frábær bíll verð ég að segja. Er að verða búinn að keyra hann 40 þúsund síðan ég fékk hann, í öllum veðrum og vindum og alltaf hefur hann komið mér á áfangastað.
Hef ekki ráðist í miklar breytingar eins og eru kannski sem mest ///BE en sinnt viðhaldi eftir því sem það hefur þurft. Það helsta sem ég hef gert er:
Málun á stuðara og allir ryðblettir skveraðir (þeir örfáu sem komnir voru)
Nýir kastarar
Powerflex í afturstell (vesen að ná gömlu úr)
Jafnvægisstangar endar allan hringinn
Diskar og klossar hringinn + handbremsuborðar
Allar vacum slöngur undir soggrein. Kostar ekki mikið og mér fannst ég verða að gera það fyrst ég var kominn þarna undir
Nokkrir skynjarar nýir
Ný framrúða, gamla var orðin leiðinlega rispuð og grjótbarin.
o.fl. o.fl.
kv.
Sáttur BMW eigandi


Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 40 guests