Smári sá um verkið og stóð sig með einstakri prýði. Ég sé ekki eftir að hafa fengið hann í þetta.
Ég skrapp áðan í Eimskip og fékk tilkynningu um að bíllinn minn væri kominn á land. Pósturinn hinsvegar klikkaði all verulega á því og týndi ábyrgðarbréfinu með pappírunum þannig að ég hef ekki ennþá getað pantað númer á hann. Þannig að hann fær ekki almennilega viðrun fyrr en eftir bíladaga.
Ojæja. það skiptir svosem ekki öllu, verð bara vel sósaður í staðinn.




