Fór með bílinn í skoðun. Einhverra hluta vegna virtust sumir skoðunarmenn vita allt um bílinn og buildið
Virtust missa áhuga á öðrum bílum og allt í einu voru nokkrir gaurar að skoða bílinn.

Þegar skoðunarmaðurinn fór undir bílinn heyrðist "Eitthvað er búið að moka undir þennan af pörtum!"


Nýr 23 miði, fundu bara eitt að..... flautan virkaði ekki. Hafði gleymst að tengja hana.

Þannig að með bílinn skoðaðan gat ég loks farið að nota hann og byrjaði að skella mér í Kringluna og lagði auðvitað lengst út í horni

Nú gat ég byrjað að tilkeyra vélina. Planið var að keyra 1000 km og vera mest að pulla milli 2000 og 4000 snúninga til að pússa hringina inn, síðan setja á hann Mobil1 5-50 áður en við færum til Þýskalands.
































































































