BMW E39 520ia - [ZP435]

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

BMW E39 520ia - [ZP435]

Postby Emil Örn » Sat 17. Sep 2016 01:41

Ég ákvað að mig langaði að stuðla að frekari virkni hérna á kraftinum, þannig ég ætla að búa til þráð um E39 sem ég verslaði um daginn.

Fyrst langar mig að sýna ykkur E34 sem ég standsetti í sumar.
Hann var verslaður af strák í Garðinum sem heitir Árni, frá manni sem átti hann á Vopnafirði í 19 ár.
Hann hafði staðið í 4-5 ár með bilaða skiptingu áður en Árni kaupir hann. Árni setur nýja skiptingu í hann og kemur í gang, en ekki löglega á götuna.
Ég kaupi hann óskoðaðann og bremsulausann, kom honum athugasemdarlaust í gegnum skoðun, skipti m.a. um bremsur hringinn, dempara, brotin ljós og fleira.
Seldi hann síðan 15 ára strák frá Hellu (eða Hvolsvelli) sem ætlar að halda áfram að gera hann upp.

Image

Image

Annars keypti ég þennan 520i fyrir nokkrum vikum síðan.
Ekki mikið um hann að segja annað en að ég datt niður á gott eintak af bíl þegar ég skoðaði hann.
Hann er titlaður "Exclusive edition" í fæðingarvottorðinu, sem mér skilst af vægu internetvafri að fylgi Nappa leður, þó svo að ég selji það ekki dýrara en ég keypti það þá er leðrið í honum allavega ansi mjúkt, og með smátíglóttum saum í bland við slétta leðrið.

Plönin eru aðallega að viðhalda bílnum og græja það sem betur mætti standa. Ef ég á hann nógu lengi mun ég versla felgur á hann fyrir næsta sumar, en það kemur í ljós þar sem ég er í flugnámi og kostnaðurinn þar gæti kallað á svolítil fjárútlát.


Þegar ég kaupi bílinn er hann allur haugskítugur að innan sem utan, og ekki arða af bónhúð á honum.
Þetta er eina myndin sem ég tók af honum áður en ég þreif hann hátt og lágt.
Image


Hérna er ég búinn að þrífa hann allan (og bóna, minnir mig). Myndin finnst mér skemmtileg afþví mér finnst þetta veður fara mjög vel með lúkkinu á bílnum í heild.
Image


Það hrjáði hann klassísk E39 veiki; Það vantaði í hann insertin í neðra grillið, ásamt því að lokið yfir dráttaraugað vantaði, sem angraði mig rosalega.
Þannig það var það fyrsta sem ég gerði á eftir þrifum.
Image

Image

Image

Þetta er nýjasta myndin sem ég á af bílnum, þarna er ég búinn að kaupa nýja númeraplötur og ramma, massa framljósin og fleira smotterí.
Image


Svo skipti ég um spyrnufóðringu að aftan og lagaði airbag ljósið sem logaði í mælaborðinu. Þannig nú er hann ljóslaus í mælaborði, sem mér þykir skemmtilegt á 14 ára gömlum BMW eknum 207.xxx km.
Image


To-do listinn hljóðar svo:
- Útvarpið er ólæsilega pixlað, sem fær að sitja á hakanum því ég get notað geisladiska í bili.
Planið er að græja AUX í bílinn á einhvern hátt. Hugmyndir að útfærslu vel þegnar.
- Bera á leðrið.
- Það er dæld á húddinu á bakvið nýrun, þyrfti sennilega nýtt húdd og það er ekki framarlega í forgangsröðinni.
- Gera við topplúguna sem opnast bara til hálfs í tilt-stillingu.
- Halda áfram að bóna og sjæna reglulega. Halda lífi í góðum E39.

Vonandi bætist sem fæst við þennan lista en þetta er jú gamall BMW þannig það er alltaf eitthvað.
User avatar
Emil Örn
Getawaybílstjóri
 
Posts: 866
Joined: Thu 20. Aug 2009 18:10
Location: ... á bakvið myndavélina.

Re: BMW E39 520ia - [ZP435]

Postby Alpina » Sat 17. Sep 2016 18:57

Magnaður bíll
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: BMW E39 520ia - [ZP435]

Postby bimmer » Sun 18. Sep 2016 14:16

Flott að bjarga þessum og gera góðan.

Hitinn í °F?
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: BMW E39 520ia - [ZP435]

Postby Emil Örn » Thu 22. Sep 2016 18:21

bimmer wrote:Flott að bjarga þessum og gera góðan.

Hitinn í °F?


Já, haha. Ég var að fikta sjálfur við að núlla inspection ljósið eftir smurningu um daginn og eftir núllstillingu breyttist úr °C í °F.

Annars var þessi gæðingur að svíkja mig í dag. Ætlaði að setja í gang en þá tekur bíllinn ekki meira við sér en að snúa startaranum. :argh:
Fór með hann beint á verkstæði og er hann þar núna að bíða eftir læknishjálp. Hann var þó dreginn af E70 þannig þetta hefði getað lúkkað verr.

Image


Edit:

Sýnist ég þurfa að laga myndirnar. Fer í málið í kvöld.
User avatar
Emil Örn
Getawaybílstjóri
 
Posts: 866
Joined: Thu 20. Aug 2009 18:10
Location: ... á bakvið myndavélina.


Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 66 guests