Emil Örn wrote:
Virkilega fallegur, facelift E60/E61 eru virkilega vel heppnaðir.
Eitt sem ég hef mikið spáð í, afhverju ertu með 17 miða á bíl sem er ekki 2013 árgerð?
Ég hef séð þetta á hinum og þessum bílum, mest á Yaris og Swift. En líka á hinum og þessum bílum sem eru augljóslega ekki 2013 árgerð, og hef aldrei getað myndað mér eðlilega skýringu á þessu.
Quote:
4. gr. Reglugerðar um skoðun Bifreiða (8/2009)
Aðalskoðun.
Með þeim undantekningum, sem tilgreindar eru í 5. gr., skal færa til aðalskoðunar:
bifreið, bifhjól og skráðan eftirvagn í fyrsta skipti á fjórða ári eftir að ökutækið var skráð fyrsta sinni, að skráningarárinu frátöldu, síðan annað hvert ár í tvö næstu skiptin og árlega eftir það; tjaldvagn og hjólhýsi (fellihýsi) í fyrsta skipti á fjórða ári eftir að ökutækið var skráð fyrsta sinni, að skráningarárinu frátöldu og annað hvert ár eftir það; fornbifreið annað hvert ár.
Ökutæki, sem færa skal til almennrar skoðunar á almanaksári, skal hafa verið fært til skoðunar fyrir lok ársins.