sosupabbi wrote:
Danni wrote:
Það verður mega vesen að fá þetta tjón bætt. Þetta slagar í hálfa milljón þetta tjón ef engir af hlutunum finnast notaðir og tryggingafélagið er ekki að fara að bæta það, borga frekar út. Eina ástæðan fyrir því að Arnar fékk sitt tjón bætt var því bíllinn hans var kaskó tryggður.
Held að bíllinn hans símons sé kaskó tryggður, svo er þetta eintak alveg meira virði en hálf milljón að mínu mati, hef fulla trú á að tryggingarnar láti bara laga bílinn.
Það verður samt bras að fá það í gegn. Tryggingarfélögin sjá bara það sem stendur á pappírum... 17 ára gamall bíll ekinn meira en 230þús. Þeir gera bara ráð fyrir því að þetta sé ryðhaugur sem fer bara í pressuna þegar svona smjátjón gerist.
Það sem er best að gera er að fara með hann á verkstæðið sem þú vilt að lagi bílinn, láta þá taka myndir, kanna kostnaðinn og láta þá síðan tala við tryggingarfélagið.