Þetta er s.s 1990 árgerð af E30, upphaflega var þetta 318is en búnir að fara nokkrir mótorar ofan í vélarsalinn í gegnum tíðina. Núna seinast M30B28.
Bíllinn er ágætlega græjaður:
Svartir leður sportstólar en áklæði er svolítið rifið
Topplúga
KW demparar og að ég held AP gormar
M-Tech II framsvunta
Soðið drif
Lítið aftermarket sportstýri
Bíllinn var málaður Imola Rot fyrir nokkrum árum og lítur hann nokkuð vel út fyrir utan einhverjar ryðbólur og smá beyglur á húddi.
Ég setti bílinn inní skúr í gærkvöldi og byrjaði að rífa mótorinn og gírkassann úr honum og kláraði það síðan í kvöld, læt nokkrar myndir fylgja.




Planið er að setja annan M30 mótor í og taka bílinn aðeins í gegn og fara síðan út að spóla
Ég er síðan búinn að kaupa felgur úti undir hann sem ég fæ vonandi heim í næstu viku



