Minniháttar update.
Fékk gott verð fyrir Azev A og ákvað að láta þær flakka, get þá verslað mér knastás og ventlagorma og ýmislegt annað smádót. You can´t have your cake AND eat it

næ mér í felgur einhvern tímann seinna þegar betur stendur á peningalega séð. Annars fer að verða lítið eftir í þessum mótor, get vonandi lokað heddinu núna í ágúst og þá vantar bara almennilega olíudælu og svo loka botninum.
Það er samt alveg nóg eftir af smáatriðum sem taka tíma (= kostar peninga), ætla mér ekki að spara einhverjar krónur þegar að fráganginum kemur. Mun finna mér stærri vatnskassa og verð með thermostat sem opnar aðeins fyrr, alternator verður færður yfir ásamt startara því það er í fínu lagi. Intake manifold verður matchað við hedd og throttle body borað út og sett stærra spjald auk þess sem ég fæ AFM úr 535. Kubburinn frá MM gerir ráð fyrir þessu og þetta er það sem ég mun notast við í byrjun, ég er reyndar með stærri spíssa en MM gerir ráð fyrir og veit ekki alveg hvaða þýðingu það hefur.
Framtíðarplanið er svo að leika sér aðeins með original inntaksgreinina og sjá hvað maður getur föndrað sig áfram með hana, jafnvel kaupa góðan flangs og smíða út frá því. Það er þó langt í það því það kostar standalone og fleira gotterí, verð atvinnulaus 1. september þannig að öll svona plön eru bara góðar og skemmtilegar hugmyndir/dagdraumar. En það er nú samt þannig að þessi mótor er ekkert eyrnamerktur Touring, fer bara í þann bíl sem verður á planinu daginn sem þetta klárast. Vona samt að það verði Touring því sá bíll er minn fyrsti E30 og fyrirtaks fjölskyldubíll, ryðlaus fyrir utan afturhlerann og svona allt í allt í ágætis standi.
Veit að þetta er eitt rólegasta og hægasta project Kraftsins en það er allavega ekkert feimnismál

kem þó með myndir um leið og eitthvað gerist.