Zed III wrote:
Danni, er þetta ekki örugglega sá sem þú ert á núna ?
Er ekkert að gerast með hann ?
Bara minor rafkvillar að bögga mig núna. Ég endaði með að taka símann úr sambandi eins og þú þar sem það var augljóslega eitthvað annað en unitið sjálft sem var að valda vandræðum. Hann var farinn að tæma rafgeyminn reglulega alveg þangað til ég tók símann úr sambandi. Kominn mánuður síðan og hann hefur ekki ennþá orðið rafmagnslaus. En í staðinn hætti hann að slökkva á útvarpinu þegar ég drep á honum. Lykillinn kominn úr, slökkt á öllu og engir takkar virka en samt heyrist ennþá hljóð í útvarpinu í svona 1-2 mín síðan slökknar á því.
En það er ekkert sem er að valda gríðarlegu vandamáli, ég ætla að fara með hann til Eðalbíla fljótlega og fá þá til að kíkja á þetta.
Annars er ekkert spes að gerast, nema ég lét sprauta skottið og setja 540 merki af E60 sem er ekki með tengingum. Finnst það koma mjög vel út. Þarf að fara að láta mála framendan og laga ryð sem er byrjað að myndast á einum stað.
En eins og er er þessi bara daily driver og 535i leikbíllinn
