Bjórsamkoman sem var 7. Mars
Jæja, þá er samkomunni lokið og kúturinn löngu búinn
Þessi samkoma tókst bara með ágætum og mættu þó nokkrar BMW hnetur, eða um 16 stykki. Að sjálfsögðu mæta fleiri næst.
Horft var á myndbönd með öðru auganu og reynt að halda sambandi við þann sem maður var að spjalla við með hinu. Ég skemmti mér hið besta og man nú miklu betur nöfnin á bakvið "nikkin". Þetta var alveg nauðsynlegt til að "aftölvunördast" smávegis, sjá andlitin á bakvið "nikkin".
Gunni Lorenz á miklar þakkir skildar fyrir að koma þessu í kring og standa í öllu snattinu kringum þetta.
Þökkum Sveinbirni (alpina) svo kærlega fyrir að koma með spóluna, hún vakti mikla lukku.
Og náttúrulega öllum sem mættu fyrir að taka þátt. Sjáumst úti í góða veðrinu í sumar
Sæmi