Page 1 of 4

Fyrsti BMWKrafts-atburður ársins -Poolmót- 29.01.05

PostPosted: Sun 23. Jan 2005 18:37
by saemi
Jæja kæru skrokkar.

Nú er komið að öðru pool móti félagsins - efnt verður til kúluskots laugardaginn 29. janúar.

Að venju verða veitt verðlaun fyrir bestan árangur í greininni og að þessu sinni ætlar hann Skúli, sérfræðingur í meðhöndlun kúlnanna, að leggja prikið á hilluna og láta óklárari BMWKrafts félaga eina um að slást um hituna.

Skúli mun samt verða okkur innan handar eins og síðast og skera úr um vafamál sem kunna að koma upp í hita leiksins. Ómetanlegur fróðleikur hans og áhugi í þessarri grein er nú í virkjun og verið að leggja lokahönd á samningaumleitanir hvað varðar verð á veigum og staðarvali.

Nánari lýsing...

BILLIARD BARINN FAXAFENI
29. janúar 2005 kl. 20:00
(byrjað verður að spila ekki seinna en 20:30!)

Þátttökugjaldið er 700kr. fyrir gilda meðlimi í BMWKrafti, 1000kr. fyrir "ógilda". Millifærist inn á reikning 322-26-002244 (kt. 510304-3730). Látið nafnið ykkar fylgja með millifærslunni. Einnig verður hægt að borga þegar á staðinn er komið.

Tilboð verða á staðnum:
Bjór: 400 kr.
Ostborgari, franskar og sósa: 500 kr.


Vegleg verðlaun verða í boði meðal annars frá eftirtöldum aðilum:

Bifreiðar og landbúnaðarvélar
Image

Tækniþjónusta bifreiða
Image

Og auðvitað fær sigurvegari mótsins bikar til eignar. :king:

Nánara fyrirkomulag ss. verðlaun og annað verða tilkynnt þegar nær dregur!

Ef fólk skildi ekki vita hvar Billiardbarinn er staðsettur þá er hann ca. hér:

Image

Yfir og út, fyrir hönd BMWKrafts;

PostPosted: Sun 23. Jan 2005 19:12
by Svezel
Öss maður klikkar ekki á þessu :P

PostPosted: Sun 23. Jan 2005 19:15
by ramrecon
:) já spurning ef maður verður hress eftir þessi veikindi er aldrei að vita.
maður hefur aldrei hafnað pool leik hér áður fyrr :lol:

PostPosted: Sun 23. Jan 2005 19:36
by fart
Oh... verð fyrir á Agureyris....

PostPosted: Sun 23. Jan 2005 22:59
by gstuning
I shall be there
and beer supply will be deminished

PostPosted: Mon 24. Jan 2005 00:45
by Bjarki
ég mæti :wink:

PostPosted: Mon 24. Jan 2005 00:58
by Dr. E31
H E L V Í T I S V I N N A ! :evil:

PostPosted: Mon 24. Jan 2005 09:00
by Logi
Ég kemst því miður ekki, verð á þorrablóti.....

PostPosted: Mon 24. Jan 2005 10:30
by Gunni
Újé! Nú verður kjuðinn mundaður og bjórinn drukkinn 8)

Re: Fyrsti BMWKrafts-atburður ársins -Poolmót- 29.01.05

PostPosted: Wed 26. Jan 2005 18:15
by iar
Yeeehaw!

Staðsetning, tími og fleira komið á hreint!!!

Nú er bara að fara að hita upp kjuðann og bjórhöndina! 8) :drunk:

saemi wrote:Jæja kæru skrokkar.

Nú er komið að öðru pool móti félagsins - efnt verður til kúluskots laugardaginn 29. janúar.

Að venju verða veitt verðlaun fyrir bestan árangur í greininni og að þessu sinni ætlar hann Skúli, sérfræðingur í meðhöndlun kúlnanna, að leggja prikið á hilluna og láta óklárari BMWKrafts félaga eina um að slást um hituna.

Skúli mun samt verða okkur innan handar eins og síðast og skera úr um vafamál sem kunna að koma upp í hita leiksins. Ómetanlegur fróðleikur hans og áhugi í þessarri grein er nú í virkjun og verið að leggja lokahönd á samningaumleitanir hvað varðar verð á veigum og staðarvali.

Nánari lýsing...

BILLIARD BARINN FAXAFENI
29. janúar 2005 kl. 20:00
(byrjað verður að spila ekki seinna en 20:30!)

Þátttökugjaldið er 700kr. fyrir gilda meðlimi í BMWKrafti, 1000kr. fyrir "ógilda". Millifærist inn á reikning 322-26-002244 (kt. 510304-3730). Látið nafnið ykkar fylgja með millifærslunni. Einnig verður hægt að borga þegar á staðinn er komið.

Tilboð verða á staðnum:
Bjór: 400 kr.
Ostborgari, franskar og sósa: 500 kr.


Vegleg verðlaun verða í boði meðal annars frá eftirtöldum aðilum:

Bifreiðar og landbúnaðarvélar
Image

Tækniþjónusta bifreiða
Image

Og auðvitað fær sigurvegari mótsins bikar til eignar. :king:

Nánara fyrirkomulag ss. verðlaun og annað verða tilkynnt þegar nær dregur!

Ef fólk skildi ekki vita hvar Billiardbarinn er staðsettur þá er hann ca. hér:

Image

Yfir og út, fyrir hönd BMWKrafts;

PostPosted: Wed 26. Jan 2005 18:30
by gunnar
Ég er að hugsa um að kíkja :D

Borga þá bara á staðnum, kannski maður fái bara að horfa á.. Er svoddann þulli í pool

PostPosted: Wed 26. Jan 2005 20:25
by Gunni
gunnar wrote:Ég er að hugsa um að kíkja :D

Borga þá bara á staðnum, kannski maður fái bara að horfa á.. Er svoddann þulli í pool


Ég skal sko segja þér það að þeir voru nokkrir þannig í fyrra ;) Það er ekkert mál þótt maður sé ekkert rosalega góður í pool, þetta er gaman og góður félagsskapur! Ekki skemmir bjórinn heldur fyrir 8)

En endilega þeir sem vilja koma en ekki keppa, mæta á staðinn og sötra með okkur öl :)

PostPosted: Wed 26. Jan 2005 20:27
by Svezel
Það er bara gaman að sötra öl og spila pool með félögunum þótt hæfileikarnir séu mjög takmarkaðir.

Maður mætir hress og kátur 8)

PostPosted: Wed 26. Jan 2005 20:48
by rutur325i
maður mætir örugglega

PostPosted: Wed 26. Jan 2005 20:51
by Kristjan
Hmm

Ég mæti. Má ég ekki bara borga á staðnum?

ps. Vill einhver sækja mig útá flugvöll :oops: