Page 1 of 5

Samkoma 7 Mars. Bjór- vídeó- spjallkvöld

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 11:17
by saemi
Sælir félagar.

Það er búið að ákveða að hafa þetta margumtalaða bjórkvöld þann 7 Mars. Staðsetningin er ekki endanlega ákveðin, en hún verður tilgreind síðar.

Áætlunin er á þessa leið:

Valinn verður staður sem býður upp á öl og vídeóáhorf. Þar verður mætt fyrir almennan opnunartíma (19-20) og verður það þá einungis fyrir BMW krafts áhugamenn (og áhangendur). Svo seinna meir verður náttúrulega húsið opnað fyrir almenning.

Gjald verður innheimt, og verður það að sjálfsögðu einungis til að standa straum af þeim kostnaði sem fer í að panta veigar þær er á boðstólum verða. Hugmyndin er að kaupa eins og einn bjórkút og nota hann á meðan dugir. Eftir það munu svo menn versla úr sínum eigin vasa á bar staðarins (þá verður líka væntanlega búið að opna staðinn).

Varðandi veigar í föstu formi er ekki búið að ákveða neitt með það. Það fer eftir hvað félagsmenn vilja. Á að hafa þetta einungis í fljótandi formi, eða vilja menn borga eitthvað aðeins meira og hafa einnig eitthvað í föstu formi?

Ég hef farið á nokkrar svona samkomur, og veit að það er hægt að hafa ýmsa smárétti á hinum og þessum stöðum. Hef t.d. farið á Vegamót þar sem var boðið upp á texmex mat, Keiluhöllina sem var með eitthvað sem ég man ekki, Gaukinn þar voru smásnittur ofl.

Við erum ekki að tala um eitthvað agalgegt verð, en þetta ætti að vera á bilinu 1000-2500kr eftir hvað við veljum.

Allar ábendingar og tillögur eru vel þegnar, en Gunni mun sjá um að finna stað handa okkur, og hann væntanlega sér um að halda ykkur við efnið í þessum málum.

Með kveðju,
Sæmi

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 15:35
by oskard
þarf ég að borga ef ég drekk ekki áfengi ? :shock:

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 16:42
by saemi
god spurning.

En ef tad verdur eitthvad ad borda? Aetlardu ta að borða?

:lol:

Saemi

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 16:47
by oskard
jábbh ;)

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 23:47
by Guest
þetta er snilld

PostPosted: Sun 09. Feb 2003 23:57
by Halli
þetta verður glæsilegt hjá ykkur hlakka til að mætta
í matinn og bjórinn og að sjálfsögðu að hitta ykkur

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 21:03
by siggiii
Sammála hlakkar til :lol:

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 23:12
by valli
Flott 8mars. 8)

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 23:27
by bjahja
Jebb, hlakka til.

Bjórkvöld

PostPosted: Wed 12. Feb 2003 23:34
by curly
er eitthvað aldurstakmark???

Re: Bjórkvöld

PostPosted: Thu 13. Feb 2003 15:47
by Raggi M5
curly wrote:er eitthvað aldurstakmark???


Góð spurning mar er nebbla enþá bara krakkaskítur :lol:

PostPosted: Thu 13. Feb 2003 15:57
by bjahja
Já ég líka, við erum nokkrir undir 20

PostPosted: Thu 13. Feb 2003 20:26
by Gunni
sko ég er eitthvað að reyna að finna stað undir þetta, en það yrði þá þannig að kl 00:00 verður spurt um skilríki. við mundum bara reyna að byrja þetta kl svona 8 og þá erum við í góðum gír.
ég læt ykkur vita þegar ég er kominn með stað, sem verður vonandi á morgun.

Gunni

PostPosted: Thu 13. Feb 2003 23:45
by hlynurst
Gott að heyra. Gaman að hafa sem flesta með.

PostPosted: Fri 14. Feb 2003 00:05
by Halli
Og strákar (stelpur) reynum að vera með
GÓÐA mætingu því flei 8) ri því betra