Page 1 of 1

Hóprúntur Föstudaginn 25 Júlí Aflýst.

PostPosted: Sat 19. Jul 2014 19:01
by Árni S.
Nú er komið að því hóprúntur og grill Föstudaginn 25 júlí

Við hittumst á bílaplaninu hjá gamla BogL við grjótháls. Mæting er kl 17:30 og verður lagt af stað á slaginu 18:00.

Leiðin liggur út úr bænum á suðurlandsveg og beygt af honum inn á nesjavelli og keyrt að þingvallaveginum þaðan liggur leiðin að þingvöllum og að svæði með útigrilli þar sem krafturinn býður í Grillaðar slöngur með kartöflusalati og öllum pakkanum, svo prins póló í eftirrétt!, og að sjálfsögðu gos með, gerum ráð fyrir allaveganna 2 pulsum á mann svo allir verði saddir!.

vonandi verður veðrið í lagi... væri leiðinlegt að þurfa að fresta aftur...

Vonast til að sjá sem flesta! :D



Endilega melda sig á listann þeir sem ætla að mæta svo við vitum hvað þarf að reikna með miklum mat.
Þeir sem eru ekki greiðandi meðlimir borga 500kr fyrir matinn þannig að muna eftir félagsskírteininu.

1. Árni S. +1 (E36 Cabrio)
2.
3.


______________________________________


Við leggjum af stað á slaginu 18:00 menn hafa þá smá tíma til koma sér til okkar.
Hér er kort af leiðinni sem verður farin.

Image

Og svo stoppum við á tjaldsvæðinu sem kallast leirar.. það skiptist í tvennt, við veljum bara það sem minna af fólki er á.

Beygjum sem sagt af þingvallaveginum þar sem þjónustumiðstöðin er og í áttina að peningagjá og þar.

Image


Með kveðju. Skemmtinefndin


Vegna veðurs verður þessi viðburður ekki haldin

Re: Hóprúntur Föstudaginn 25 Júlí

PostPosted: Sun 20. Jul 2014 00:41
by Páll Ágúst
1. Árni S. +1 (E36 Cabrio)
2. Páll Ágúst (reyna fá far í kózý bmw hjá einhverjum)
3.

Re: Hóprúntur Föstudaginn 25 Júlí

PostPosted: Sun 20. Jul 2014 08:26
by ömmudriver
1. Árni S. +1 (E36 Cabrio)
2. Páll Ágúst (reyna fá far í kózý bmw hjá einhverjum)
3. ömmudriver

Re: Hóprúntur Föstudaginn 25 Júlí

PostPosted: Mon 21. Jul 2014 15:31
by Páll Ágúst
Er þetta samt ekki smá óhentugur tími?

bara pæla, virðast ekki margir vera game

Re: Hóprúntur Föstudaginn 25 Júlí

PostPosted: Mon 21. Jul 2014 16:23
by tryggvibear
Er sunnudagurinn alveg út úr söguni? Hann virðist nú vera töluvert betri skv. langtímaspánni á yr.no, svo eru ekki eins margir að vinna :?

Re: Hóprúntur Föstudaginn 25 Júlí

PostPosted: Mon 21. Jul 2014 21:23
by sh4rk
Mér finnst þetta vera mjög óheppilegur tími, svolítið seint að fara kl 18:00, og svo er ég að vinna til klukkan 19:00
Hentar ekki sunnudagurinn betur í þetta?

Re: Hóprúntur Föstudaginn 25 Júlí

PostPosted: Mon 21. Jul 2014 22:08
by rockstone
ég mæti líklegast ekki ef þetta er á föstudegi, glatað svona seint, sunnudagur hentar mér

Re: Hóprúntur Föstudaginn 25 Júlí

PostPosted: Mon 21. Jul 2014 23:57
by Danni
1. Árni S. +1 (E36 Cabrio)
2. Páll Ágúst (reyna fá far í kózý bmw hjá einhverjum)
3. ömmudriver
4. Danni (E36 Sedan)

Verð að taka undir með mönnum hérna, finnst þetta frekar óheppilegt tímasetning. En ef hún verður látin standa þá reyni ég samt að mæta, líka ef hún verður færð.

Re: Hóprúntur Föstudaginn 25 Júlí

PostPosted: Tue 22. Jul 2014 00:31
by gardara
1. Árni S. +1 (E36 Cabrio)
2. Páll Ágúst (reyna fá far í kózý bmw hjá einhverjum)
3. ömmudriver
4. Danni (E36 Sedan)
5. Garðar (E36 sedan)

Flottur tími, reyni að mæta :thup:

Re: Hóprúntur Föstudaginn 25 Júlí

PostPosted: Tue 22. Jul 2014 18:48
by sosupabbi
rockstone wrote:ég mæti líklegast ekki ef þetta er á föstudegi, glatað svona seint, sunnudagur hentar mér

x2

Re: Hóprúntur Föstudaginn 25 Júlí

PostPosted: Tue 22. Jul 2014 20:03
by Árni S.
það er nú bara þannig að það er enginn laus um helgina til þess að halda þetta.

svo er veðurspáinn á föstudaginn ekkert frábær....

en það er áætlaður hóprúntur föstudaginn 15. ágúst sem væri hægt að breyta í sunnudaginn 17.ágúst ef menn vilja

þessi hóprúntur er líklegast off...

Kv. Árni S.

Re: Hóprúntur Föstudaginn 25 Júlí

PostPosted: Wed 23. Jul 2014 19:46
by tolliii
Verður þessu frestað eða ekki? Var búinn að biðja fólk um að taka sér frí vegna þessara viðburðar.

Re: Hóprúntur Föstudaginn 25 Júlí

PostPosted: Wed 23. Jul 2014 19:47
by tolliii
1. Árni S. +1 (E36 Cabrio)
2. Páll Ágúst (reyna fá far í kózý bmw hjá einhverjum)
3. ömmudriver
4. Danni (E36 Sedan)
5. Garðar (E36 sedan)
6. Þorleifur +2 (e39 540)

Re: Hóprúntur Föstudaginn 25 Júlí

PostPosted: Wed 23. Jul 2014 20:33
by Árni S.
tolliii wrote:Verður þessu frestað eða ekki? Var búinn að biðja fólk um að taka sér frí vegna þessara viðburðar.

það þykir mér mjög leiðinlegt ... en það eru svo fáir skráðir og veðurspáin er léleg þannig að þessi viðburður verður ekki....

í staðinn verður samkoma sunnudags kvöldið....

Kv. Árni S.