Jæja! Þá er komið að því!
Nú er komin dagsetning á POOL mót BMWKrafts!
Staðsetning og tími:
BILLIARD BARINN FAXAFENI
13. mars 2004 kl. 19:30
Þátttökugjaldið er 1000kr. (700kr. fyrir gilda meðlimi, sjá nánar tilkynningu varðandi meðlimaskírteini) Millifærist inn á reikning 315-13-7354 (kt. 020274-4689). Látið helst nafnið ykkar fylgja með millifærslunni.
Tilboð verða á staðnum:
Bjór: 450 kr.
Ostborgari og franskar: 450 kr.
Fyrirkomulag fer að einhverju leiti eftir fjölda þáttakenda en planið er að spilað verði í riðlum og verða 4-5 í hverjum riðli og allir spila einn leik við alla þannig að tryggt er að allir fá að spila 3-4 leiki.
Verðlaunin verða alls ekki af verri endanum, meðal annars:
Glaðningur frá Bifreiðum og landbúnaðarvélum
Glaðningur frá Tækniþjónustu bifreiða
Autoglym vörur frá Filtertækni ehf.
Nánara fyrirkomulag ss. verðlaun og annað verða tilkynnt þegar nær dregur!