BMWkraftur ætlar að skella sér með Porsche klúbbnum í eftirmiðdags-kvöldferð næsta fimmtudag.
Hittingur er fyrir utan Bílabúð Benna klukkan 17 næsta fimmtudag.
Grillvagninn verður fenginn til meðferðar og mun hann skutlast með viðeigandi matföng til að útbúa kvöldverð á viðeigandi stað í Hvalfirði.
Kostnaður er um 1700 krónur, það verður staðfest áður en farið er af stað.
Veðurspáin er brilljant, heiðskýrt og hægur vindur af norðri. En að sjálfsögðu er farið að kólna, gera má ráð fyrir 6-8 stiga hita, þannig að það er betra að taka með góða peysu og jafnvel húfu og vettlinga...








