bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

well well
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=4&t=41
Page 1 of 1

Author:  GauiJul [ Thu 05. Sep 2002 23:57 ]
Post subject:  well well

Jæja voru menn ekki bara almennt sáttir við rúntinn???

Nú er bara spurning hvenær eigum við að hittast næst?

Væri ekki sniðugt að hafetta allavega´annan hvern fimmtudag eða eikkað solliss??

allavega á meðan veturinn er ekki alveg komin !

Eða vilja menn hittast oftar eða sjaldnar?

Author:  Gunni [ Fri 06. Sep 2002 02:13 ]
Post subject: 

persónulega er ég á móti því að hafa svona samkundur á virkum dögum þar sem fólk þarf víst að vinna fyrir sér. frekar mundu menn vilja hafa þetta um helgar. það er allavega mín skoðun.

annars var ég mjög sáttur við þetta alltsaman og þótti hin magnaðasta skemmtun. ég held að við þyrftum að reyna að hittast soldið áður en það kemur einhver alvöru vetur. þá getum við frekar hisst yfir grilli og bjór :) hvað segið þið hinir ?

p.s. þið sem mættuð ei í kvled endilega drífa sig næst :!:

Author:  Djofullinn [ Fri 06. Sep 2002 10:44 ]
Post subject: 

Ég er sammála þér Gunni, helgarnar eru miklu betri.

Það var halvíti góð mæting! Það er bara verst að þið voruð akkurat að fara þegar ég kom, en ég náði þó 4 myndum :D
Leist ykkur ekki vel á bangedup Coltinn sem ég var á hehe

Oh well ég veerð væntanlega kominn á BMW áður en næsta samkoma verður :)

Author:  Kull [ Fri 06. Sep 2002 11:40 ]
Post subject: 

Þetta var flott, ágætis mæting bara.

Ég held að það verði að hafa þetta á helgi því það er farið að dimma svo snemma að það er lítið gaman að hafa þetta á kvöldin. Það er kannski sniðugt að reyna að koma saman aðra hverja helgi áður en mesti veturinn kemur en fækka þessu þá niður í kannski einu sinni í mánuði.
Síðan er spurning um staðsetningu ef þetta er um helgi, þá eru kringlan og smárinn náttúrulega út úr myndinni.

Author:  Flicker [ Fri 06. Sep 2002 14:54 ]
Post subject: 

Einnig finnst mér að við þyrftum að skipuleggja rúntinn sjálfan aðeins betur.. því við vorum að tína alltof mörgum á ljósunum... einnig finnst mér að menn eigi ekki að vera að gefa svona mikið í, meira að vera í einni feitri röð á 60 eða eitthvað álíka (miðað við á hvaða veg við erum) annars fannst mér þetta vera þræl heppnað og skemmtilegt... vonandi mæta fleiri á næstu samkomu en samt var ég mjög sáttur við þessa mætingu sem var núna.

Author:  DXERON [ Sat 07. Sep 2002 00:26 ]
Post subject:  Timi fyrir Samkomu

Halda samkomur um helgar? (persónulega: Helgar)
Sunnudag eða laugardag?
(er að vinna á laugardögum til kl. 16)
nú þegar það er farið að dimma svona á kvöldin væri ekki rétt að halda samkomur áður en það fer að rökkva svo það fáist betri myndir? svo gætu þeir sem vildu hittast um kveld niðri bæ þar sem stemmning væri.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/