Nú fer að koma að dyno deginum sem allir hafa beðið eftir!
Nú geta menn fengið að sjá svart á hvítu hver stóð sig best í tjúnninu í vetur
Dynodagurinn verður Laugardaginn 12. september kl 12:00 í Tækniþjónustu Bifreiða.Verð:
Meðlimir: 5000 kr
Ólimir: 6000 krÞeir sem ætla að vera með skrái sig á lista hér í þessum þræði eins og hefur stundum verið gert.
Gjaldið skal leggja inn á reikning BMWKrafts.
Reikningsnúmer BMWKrafts er: 0322-26-2244, kennitala 510304-3730.
---------------------------------------
Menn hafa svoldið verið að spyrjast fyrir um hvort hægt sé að taka 2 run, ss. prufa annað map, setja maf í etc.. Nonni sagði að það væru tekin 2-3 run á öllum bílum til að staðfesta tölur þannig að ef að menn vilja prufa eitthvað þá þarf það að vera fljótlegt og má ekki tefja alla röðina.
Við ætluðum að reyna að miða við að lágmarkið sé ~10 bílar, ekkert heilagt þó en það gengur ekki að það mæti 3 bílar
Bílar eru algjörlega á ábyrgð eiganda meðan þeir eru í dyno bekknum.
Það þarf að undirbúa nýrri bíla aðeins til að fá togtölur og Hafþór ætlaði að stjórna því úti til að þetta gangi sem hraðast fyrir sig. Það þarf ss að setja þráð á milli kertis og háspennukeflis á einum cyl. á bílum sem eru með cop. Púlsin er tekinn þar.
Og meira varðandi togið, TB eiga ekki búnað til að fá togtölur á diesel bílum, en auðvitað er hægt að fá hö tölur.
Krafturinn verður svo með grillaðar slöngur og gos á svæðinu þannig að það er um að gera að líta við og gera sér glaðan dag
Kv. Skemmtinefndin